100 atriði um golf sem enginn sagði þér frá

Dagsetning:

27. nóvember 2024, 19:30 - 27. nóvember 2024, 22:00

Staðsetning

KVAN, Kópavogur

Deila:
Bæta við í dagatal
Námskeið með Margeiri Vilhjálmssyni, miðvikudaginn 27. nóvember kl. 19:30-22:00

Golfsiðir, leikhraði, umgengni og fleiri atriði sem gera þig betri í golfi án þess að sveifla kylfunni.

Líður þér illa á golfvellinum og hefur stöðugar áhyggjur af þeim sem eru að spila á eftir þér? Andarðu inn eða út í baksveiflunni eða heldurðu bara í þér andanum af spenningi? Hvernig er best pakka fyrir golfferð. Er betra að nota bleikan bolta en hvítan?

Hvernig er best að lækka forgjöfina hratt?

Skipulag

Þetta er 2,5 klukkustunda námskeið þann 27. nóvember frá kl. 19:30-22:00. Námskeiðið fer fram í sal okkar að Hábraut 1a í Kópavogi.

Verð

14.900 kr. á þátttakanda. 

Þjálfari námskeiðsins

Þjálfari er Margeir Vilhjálmsson PGA golfkennari og golfvallafræðingur.  Margeir hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu af golfi. Margeir hefur stýrt tveimur stærstu golfklúbbum landsins, haft umsjón með skipulagningu stórmótum í golfi bæði hérlendis og erlendis og þjálfað fjölda kylfinga.

Við bjóðum fyrirtækjum, golfhópum og golfklúbbum að halda sér námskeið þar sem efnistök eru sniðin utan um áskoranir þess hóps sem sækir námskeiðið. Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.

 

Skráðu þig núna

Tegund viðburðar: Fjöldi: Einingarverð:
100 atriði um golf
30 Left:
Fjöldi:
Einingarverð: 14.900 kr.

Skilaboð til KVAN

Fjöldi: Samtals: