Æfingaferð 3. fl. kvk Breiðabliks til Albir – staðfestingargjald

Dagsetning:

11. júní 2024, 07:00 - 17. júní 2024, 15:00

Staðsetning

,

Deila:
Bæta við í dagatal

Góðan daginn,

Hér getur þú gengið frá greiðslu 40.000 kr. staðfestingargjalds fyrir æfingaferð 3. flokks kvk Breiðabliks til Albir dagana 11.-17. júní 2024. Staðfestingargjaldið er óendurkræft og ganga verður frá greiðslu gjaldsins í síðasta lagi þann 11. janúar 2024.

Heildarverð ferðar iðkanda/leikmanns er 247.500 krónur miðað við að gist sé í tveggja/þriggja manna herbergjum. Greiðasla fyrir tvo þjálfara og tvo forráðamenn er innifalið í heildarverðinu. 

Upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá eftirstöðvum verða sendar síðar en ganga þarf frá lokagreiðslu eigi síðar en 8 vikum fyrir brottför.

Innifalið í ferð:

  • Flug með Play fram og til baka
  • 20 kg. Farangursheimild + lítill handfarangur (bakpoki t.d.)
  • Gisting á Albir Garden Bike and Sport Resort í 6 nætur
  • Fullt fæði innifalið (morgunmatur, hádegismatur og kvöldverður) alla daga
  • Æfingar 2 x á dag á grasi
  • Fararstjórn með starfsmanni KVAN
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Aðgangur að líkamsrækt á hóteli, sauna, ísbaði, inni og útisundlaugum

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN Travel í síma 519-3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is

Hlökkum til að ferðast með ykkur!

Kær kveðja,
Starfsfólk KVAN Travel