Golf-KVAN til Penina í Portúgal 23.-30. október
Dagsetning:
23. október 2023, 14:00 - 30. október 2023, 23:59
Staðsetning
,
KVAN býður uppá spennandi golfferð til Penina í Portúgal með Margeiri Vilhjálmssyni PGA golfkennara.
Golfferð á Penina Golf Resort á Algarve í Portúgal. Penina Hótelið er staðsett vestast á Algarve ströndinni í Portúgal í útjaðri borgarinnar Portimao. Stór sundlaugargarður og framúrskarandi sólbaðsaðstaða er við hótelið. Tveir golfvellir eru á Penina. Sir Henry Cotton Championship völlurinn sem leikið var á reglulega á Evrópumótaröðinni á árunum 1975-2000 en völlurinn er talinn meðal bestu valla í Portúgal. Resort völlurinn er 9 holu völlur í fullri lengd, þröngur og krefjandi völlur.
Alla daga er boðið uppá golfæfingar og upphitun áður en leikur hefst á Sir Henry Cotton Championship vellinum, en rástímar hafa verið forbókaðir á besta tíma dagsins. Golfmót, golfskemmtun og allt sem þarf til að prýða skemmtilega golfferð í góðum félagsskap á frábærum stað.
Frá Penina Hótelinu er stutt í alla þjónustu. Aqua verslunamiðstöðin er í 6 mínútna akstursfjarlægð. Stutt er að fara í bæina Lagos, Alvor og til borgarinnar Portimao þar sem er iðandi mannlíf.
Hámarkssfjöldi í ferð er 20 manns þannig að allir ættu að geta fengið eins persónulega þjónustu/upplifun og völ er á.
Ferðatilhögun:
Flogið með Play til Lissabon. Farið með rútu frá Lissabon til Penina (2 klst 30 mín.)
Mánudagur 23. október
14:50 Flug til Lissabon
20:20 Lent í Lissabon
Áætluð koma á hótel um miðnætti
Þriðjudagur 24. október
10:00 Golfæfing og upphitun
12:32 Fyrsti rástími
19.30 Kvöldverður á hóteli
Miðvikudagur 25. október
10:00 Golfæfing og upphitun
11:52 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á hóteli
Fimmtudagur 26. október
10:00 Golfæfing og upphitun
12:32 Fyrsti rástími (Golfmót)
19:30 Kvöldverður á hóteli
Föstudagur 27. október
Frjáls dagur
Hvíld eða – golf á öðrum velli í nágrenninu (ekki innifalið)
Laugardagur 28. október
10:00 Golfæfing og upphitun
11:20 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á hóteli
Sunnudagur 29. október
9:00 Golfæfing og upphitun
10:40 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á Hóteli
Mánudagur 30. október
10:00 Golfæfing – samantekt – (9 holur á Resort velli)
12:00 Útskráning af hóteli
16:30 Brottför til Lissabon flugvallar
20:55 Flug til Íslands
01:30 Lent á Íslandi – ferðalok
Innifalið
- Flug
- 20 kg. innritaður farangur auk flutningur á golfsetti
- Akstur til og frá flugvelli að hóteli
- Gisting á 5 stjörnu hóteli í tveggja manna herbergi með sundlaugarsýn
- Morgunverður
- Internet (wifi)
- 5 hringir á Sir Henry Cotton Championship golfvellinum
- Forbókaðir rástímar milli 10:30 og 13:00
- Golfbíll
- Golfæfingar undir leiðsögn PGA golfkennara á stærsta æfingasvæði í Portúgal
- 5 kvöldverðir með léttvíni/bjór/gosdrykkjum
Verð
365.000 kr. miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi.
410.000 kr. í einstaklingsherbergi.
Fyrir bókanir í ferðina hafið samband við Ingu verkefnastýru KVAN-Travel í gegnum netfangið inga@kvan.is
Gist er á Penina Hotel & Golf Resort
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN í gegnum netfangið inga@kvan.is eða í síma 519-4040.
Hlökkum til að ferðast með ykkur!
Starfsfólk KVAN og Margeir Vilhjálmsson PGA golfkennari