Fullt á viðburðinn – Kvennakvöld KVAN í Salnum Kópavogi
Dagsetning:
15. janúar 2025, 19:00 - 15. janúar 2025, 21:30
Staðsetning
Salurinn Kópavogi, Kópavogur
ATH – fullt er á viðburðinn. Yfir 300 sæti ruku út!
Kvennakvöld KVAN miðvikudaginn 15. janúar í Salnum Kópavogi. Húsið opnar klukkan 19:00.
Finnum orkuna og gleðina fyrir nýja árið. Við ætlum að fjalla um markmiðin fyrir árið, heilsuna, börnin og samfélagsmiðlana, hugrekkið, húmorinn, kynlífið og sjálfstraustið.
Glæsileg fyrirtæki verða með vörukynningar þar sem gestum býðst að smakka á drykkjum og fleiru áður en uppbyggjandi og skemmtilega dagskrá hefst. Kynningar hefjast um leið og húsið opnar klukkan 19:00 og dagskráin hefst svo klukkan 20:00 og stendur yfir til 21:30. Dregið verður úr glæsilegum happdrættisvinningum um kvöldið.
Veislustjóri kvöldsins er Anna Steinsen ásamt frábærum fyrirlesurum og gleðigjöfum.
Alda María Ingadóttir zumbakennari endar svo kvöldið með okkur af krafti eins og henni einni er lagið!
Verð
Frítt er inn á viðburðinn en takmarkaður fjöldi kvenna kemst að. Færri konur hafa komist að en viljað á kvennakvöldin okkar seinustu ár svo endilega skráðu þig strax. Taktu vinkonu(r) með eða komdu bara ein.
Athugið – Þó svo nokkrar konur ætli að mæta saman þá þarf að skrá hverja og eina á viðburðinn.
Hlökkum til að taka á móti ykkur, öll velkomin!
Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita ef sæti losna eða við bætum við námskeiði