Námskeið í kynningartækni fyrir sérfræðinga í hjúkrun
Dagsetning:
19. janúar 2023, 09:00 - 19. janúar 2023, 16:00
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
Kynningartækni fyrir sérfræðinga í hjúkrun. Fimmtudaginn 19. janúar kl. 9:00-16:00
Sérsniðið námskeið í kynningartækni fyrir sérfræðinga í hjúkrun. Námskeiðið nýtist þeim sem vilja koma fram fyrir hönd síns starfs, stofnunar eða félagasamtaka á áhrifaríkan og vandaðan hátt. Lögð er mikil áhersla á að þátttakendur fái sérsniðna þjálfun út frá sínum styrkleikum, að þeir efli kynningartækni sína og geti sett málefni fram á skipulagðan og áhrifaríkan hátt.
Fyrir hverja
Kynningartækni KVAN er fyrir alla þá sem vilja auka hæfni sína og getu við að kynna t.d. verkefni, hugmyndir og stefnu fyrirtækja eða stofnana á áhrifaríkan, skemmtilegan, hvetjandi og faglegan máta. Námskeiðið hentar starfsmönnum sem vilja koma fram fyrir hönd sinna fyrirtækja og stofnana, t.d. tengt kennslu, ráðstefnum og fjölmiðlum.
Hvað get ég lært
Eftir námskeiðið ættir þú að hafa komið auga á hvar styrkleikar þínir liggja í kynningartækninni og hvernig best er að nýta þér þá. Þú lærir einnig um mismunandi tegundir af áhrifaríkum kynningum, hvernig og hvenær myndefni/powerpoint á við í kynningum og hvernig hægt er að nýta það til að auka áhrifamátt kynninga til muna. Þú getur lært aðferðir við að halda streitu í lágmarki, fundið stuðning og hugrekki til að líða vel í því hlutverki að tala fyrir framan annað fólk. Þetta, ásamt svo mörgu öðru getur þú lært á KVAN kynningartækni.
Skipulag
Námskeiðið er kennt fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá kl. 9:00 – 16:00. Námskeiðið fer fram í sal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut 22.
Þjálfari námskeiðsins
Þjálfari á KVAN kynningartækni er Anna Guðrún Steinsen. Anna hefur yfirgripsmikla þekkingu og mjög mikla reynslu í þjálfun á kynningartækni og hefur þjálfað hundruði stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis.