Leiðtogaþjálfun KVAN

Dagsetning:

25. janúar 2024, 09:00 - 29. febrúar 2024, 12:00

Staðsetning

KVAN, Kópavogur

Deila:
Bæta við í dagatal

Hefst 25. janúar, kennt á fimmtudögum frá kl. 09:00-12:00.

Á leiðtogaþjálfun KVAN veitum við þér hagnýt verkfæri sem nýtast í starfi. Áhersla er lögð á styrkleika, jafningjasambönd, leiðtogahæfni, markþjálfun, liðsheild, starfsanda, menningu og erfið starfsmannasamtöl. Með því að nota efni námskeiðsins gefst þér færi á að hafa jákvæð áhrif á eigið starf og líðan og árangur samstarfsfólks.

Fyrir hverja

Leiðtogaþjálfun KVAN er fyrir alla þá stjórnendur fyrirtækja og stofnana sem hafa mannaforráð.

Efnistök námskeiðsins

Þú sem stjórnandi

– Hvernig stjórnandi ertu?
– Hvernig stjórandi viltu vera?
Við hjálpum þér að þarfagreina þínar þarfir með hag fyrirtækisins að leiðarljósi.

Jafningjasambönd, leiðtogar og liðsheild

Ótal rannsóknir sýna fram á mikilvægi jafningjasambanda á vinnustað. Við kennum þér að kortleggja jafningjasambönd á þínum vinnustað og búum til aðgerðaráætlun til að leiðrétta þá hluti sem þarf að vinna í.

Styrkleikamiðuð nálgun

Rannsóknir sýna að með því að veita athygli á styrkleika þína og starfsmanna þinna þá sexfaldast líkurnar á því að starfsmenn verðir virkari í starfi. Þú tekur styrkleikapróf og við kennum þér að lesa út úr því og yfirfæra á starf þitt.

Markþjálfun

Með markþjálfun hefur verið sýnt fram á hvernig hægt er að sækja þekkingu, viðhorf og eldmóð starfsmanna til góðra verka.
Við kennum þér aðferðarfræði markþjálfunar og sýnum hvernig þú getur nýtt þér hana í þínu starfi.

Erfið starfsmannasamtöl

Starfsmannasamtöl eru eitt af lykilatriðum sem að öflugur leiðtogi þarf að temja sér að gera reglulega í sínu starfi. Við kennum og þjálfum þig í að nýta ákveðna tækni í erfiðum starfsmannasamtölum.

Menning og starfsandi

Hver er vinnustaðamenningin á þínum vinnustað? Hvernig myndaðist hún? Við kennum þér aðferðarfræði CircleCoach sem hægt er að nýta til þess að fá starfsmannahópinn þinn til þess að greina lykilhegðanir í daglegu starfi, hegðanir sem endurspegla svo þá menningu sem starfsmenn vilja hafa á sínum vinnustað.

Hvatnig og hrós

Í könnunum sem gerðar eru út um allan heim kemur mjög oft fram að starfsmenn segjast ekki fá nægilega mikið og markvisst hrós frá sínum leiðtogum. Við kennum þér aðferðarfræði sem þú getur nýtt þér til að efla hæfileika þína í hvatningu og hrósi dags daglega.

Einelti á vinnustað

Lög og reglugerðir segja með skýrum hætti að stjórnendum beri að taka á einelti á vinnustað sem og að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk verði fyrir einelti. Þrátt fyrir þetta viðgengst einelti á vinnustöðum og sýna rannsóknir að tíðni eineltis á vinnustöðum er yfirleitt á bilinu 3–12%. Hvernig greinir þú einelti og hvernig tekur þú á því sem leiðtogi á þínum vinnustað? Við kennum þér aðferðarfræði sem nýtist þér í þessu erfiða verkefni.

Skipulag

Námskeiðið er kennt í 6 skipti, einu sinni í viku í þrjár klukkustundir í senn. Námskeiðið hefst þann 25. janúar og lýkur þann 29. febrúar. Kennt verður fimmtudagana 25. janúar, 1., 8., 15., 22. og 29. febrúar frá klukkan 9:00-12:00.

Þjálfari námskeiðsins

Þjálfari leiðtogaþjálfunar KVAN er Jón Halldórsson en hann hefur yfirgripsmikla þekkingu og mjög mikla reynslu á leiðtogaþjálfun og hefur þjálfað ótal stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja og stofnana.

Verð

149.900 kr.

Styrkir

  • Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
  • Vinnumálastofnun veitir atvinnuleitendum styrk fyrir 75% af námskeiðsgjaldinu.
  • Fyrirtæki geta flest sótt styrk frá Starfsmenntunarsjóði fyrir allt að 90% af kostnaði fyrir alla starfsmenn sína. Sá styrkur er óháður inneign starfsmanna sjálfra í sjóðnum. Hægt er að sjá nánar á attin.is

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari uppslýsingar.