Sumarnámskeið fyrir 11-13 ára, 6.-16. ágúst kl. 13-16
Dagsetning:
6. ágúst 2024, 13:00 - 16. ágúst 2024, 16:00
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
Fyrir börn sem voru í 5.-7. bekk á þessu skólaári. Kennt alla virka daga kl. 13-16
Skemmtilegt námskeið sem leggur áherslu á leiðtogafærni, vináttu og samskipti. Fullt af útivist, samvinnuleikjum og gleði.
Markmið
Að efla börn til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í þeirra lífi.
Áskoranir
Börn í dag eru að takast á við ýmsar áskoranir í samskiptum, félagsfærni og vináttu. Hægt er að undirbúa börn undir þessar áskoranir.
Forsendur
Til að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu. Allir geta verið leiðtogar ef þeir einungis fá tækifæri til þess, ásamt þjálfun og reynslu.
Skipulag
Námskeiðið er kennt 6.-16. ágúst, alla virka daga í 3, klst. í senn. Sumarnámskeiðin eru kennd í sal okkar að Hábraut 1a í Kópavogi. Á hverjum degi notum við umhverfið og förum út en byrjum og endum námskeiðin alla daga að Hábraut 1a.
Ávinningur
Að loknu námskeiði hafa börnin fengið þjálfun og fræðslu um samskipta-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Það þýðir til dæmis að þau hafa lært ýmsar aðferðir til að eignast og halda vinum, sem og að takast á við ágreining og neikvæðar athugasemdir. Þau hafa einnig lært um mikilvægi samvinnu og umburðarlyndis, ásamt því að þau hafa lært hvernig þau geta verið jákvæðir leiðtogar í hópnum sínum, fjölskyldu og eigin lífi.
Við minnum á að ef börn og unglingar notast við stuðningsaðila í skóla þá þurfi einnig að koma með stuðning á öll námskeið okkar fyrir ungt fólk.