Upplifðu Færeyjar með Jógvan Hansen 15.-19. ágúst 2024 – UPPSELT

Dagsetning:

15. ágúst 2024, 08:00 - 19. ágúst 2024, 16:00

Staðsetning

Færeyjar,

Deila:
Bæta við í dagatal

Uppselt er í ferðina. Verið er að athuga með fleiri sæti. Vinsamlegast hafðu samband við okkur á kvantravel@kvan.is fyrir frekari upplýsingar.

 

Komdu með í stórkostlega ferð til Færeyja, 15.-19. ágúst!

Færeyjar eru þekktar fyrir sína dramatísku og fjölbreyttu náttúru með þverhnýpt fjöll, djúpa dali, fjörur og fossa. Eyjarnar eru átján talsins og þar búa um 54.000 manns. 

Fararstjóri

Farastjóri ferðarinnar verður færeyingurinn Jógvan Hansen sem er íslendingum vel kunnugur og mun hann sýna okkur allt sem Færeyjar hafa upp á að bjóða.

VERÐ
239.900 krónur miðað við tveggja manna herbergi
304.900 krónur miðað við einstaklings herbergi

INNIFALIÐ Í VERÐI

  • Flug fram og til baka með Icelandair
  • 20 kg. innritaður farangur
  • Akstur til og frá flugvelli og í skoðunarferðir
  • Gisting í 4 nætur á Hotel Hafnia með morgunverði: https://www.hotelhafnia.com/hotel-hafnia
  • Fararstjórn
  • Kvöldmatur og kvöldskemmtun (1 kvöld)
  • Upplifun á þjóðdönsum færeyinga

FERÐATILHÖGUN

Dagur 1 – 15. ágúst. Lent í Færeyjum (Vágar) klukkan 11:20. Á leiðinni upp á hótel verður keyrt í gegnum Gásadal þar sem er fámennasta byggðin í Færeyjum með aðeins 15 íbúa. Að því loknu verður ekið í gegnum Sørvág og Sandvág. Ef veður leyfir verður Sørvágsvatn skoðað. Áætluð koma til Þórshafnar er um kl. 18:30. Innritun á hótel og kvöldverður saman á hótel Hafnia (ekki innifalið í verði). 

Dagur 2 – 16. ágúst. Skoðunarferð í Þórshöfn. Sandey, Straumey og Kirkibær skoðaður. Frjálst kvöld.  

Dagur 3 – 17. ágúst. Skoðunarferð í Klaksvik og Mykines. Bruggverksmiðjan Föroya Bjór er í Klaksvik, áhugasamir geta heimsótt hana. Þjóðdansar í Þórshöfn um kvöldið og þjóðmatur Færeyinga borðaður (innifalið) 

Dagur 4 – 18. ágúst. Activity dagur í Færeyjum. Fólk getur valið um að fara í róður, fjallgöngu eða klifur. Ef það eru einhverjir sem vilja frjálsan dag er það líka í boði. 

Dagur 5 – 19. Ágúst. Lagt af stað upp á flugvöll klukkan 10.  

Dagskrá gæti breyst eftir veðri og vindum í Færeyjum 😊 

 

Ef einhverjar frekari spurningar vakna þá hafið samband við okkur á kvantravel@kvan.is eða í síma 519 3040

Hlökkum til að ferðast með ykkur!