Verkfærakistan, opið námskeið fyrir leikskólakennara
Dagsetning:
16. mars 2021, 09:00 - 18. maí 2021, 12:00
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
KVAN býður upp á námskeiðið Verkfærakistan fyrir starfsfólk leikskóla. Þetta er “opið” námskeið sem þýðir að allir geta tekið þátt, burt séð frá hvaða leikskóla þeir tilheyra
Hagnýtt námskeið fyrir leikskólakennara og annað fagfólk til að vinna með hópa og einstaklinga í samskipta- og félagslegum vanda. Rannsóknir sýna að því fyrr sem forvarnir gegn einelti og öðrum félagslegum vanda hefjast því betra. Slíkum vanda fylgja oft alvarlegar og jafnvel langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir börn og jafnvel hópinn í heild. Því er mikilvægt að skima fyrir félagslegum erfiðleikum og grípa inn í eins fljótt og auðið er. Til að svo megi verða þurfa leikskólakennarar og allir þeir sem vinna með börnum að hafa þekkingu og færni til að koma auga á börn í félagslegum vanda ásamt því að kunna árangursríkar aðferðir til að hjálpa þeim. Oft er þó ekki nóg að vinna eingöngu með einstaklinga heldur þarf að vinna með allan hópinn. Góður andi í barnahópnum er frábær forvörn gegn einelti og ýmsum samskiptavandamálum. Bestur árangur næst með markvissum langvarandi aðgerðum sem beinast annars vegar að einstaklingum og hins vegar að hópnum.
Námskeiðið hefur verið gríðarlega vinsælt á undanförnum árum og hafa yfir 1.000 kennarar og fagfólk tekið þátt í námskeiðinu.
Fyrir hverja
Námskeiðið er fyrir starfandi leikskólakennara og annað fagfólk sem vinnur á leikskólum.
Hvað get ég lært
Að loknu námskeiði ætti fagfólk að hafa öðlast verkfæri til að bera kennsl á og vinna með einstaklinga sem eiga í félagslegum vanda annars vegar og hópa sem glíma við samskiptavanda hins vegar. Einnig færðu tækifæri til að greina hvar vandinn liggur en hann getur verið fólginn í samskiptaerfiðleikum, ljótu orðfari, lélegum anda, einelti, ágreiningi innan hópsins, lélegum vinnufrið og svo mætti áfram telja. Vandi einstaklinga getur verið vinaleysi, klaufagangur í samskiptum, höfnun, einelti, hegðunarvandi og önnur félagsleg vandamál. Dæmi um aðferðir og verkfæri sem þú færð á námskeiði Verkfærakistunnar eru vináttuþjálfun, notkun innri hvata, jákvæð leiðtogaþjálfun, afleiðingaaðferðin, vinna með gerendur, samvinnuleikir og samvinnuverkefni, reiðistjórnun, félagsfærniþjálfun og hópefli.
Skipulag
Námskeiðið samanstendur af 6 skiptum, tvær og hálfa klukkustund í senn. Inn á milli tímanna prófa þátttakendur aðferðirnar í sínum hópi og fá stuðning og handleiðslu í næsta tíma á eftir. Þátttakendur fá handbókina Verkfærakistan og fleiri verkfæri til að nota á námskeiðinu sem og við áframhaldandi vinnu.
Kennt á þriðjudögum kl. 9:00-11:30.
16. mars, 23. mars, 6. apríl, 20 apríl, 4. maí og 18. maí.
Námskeiðið fer fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi.
Þjálfari
Þjálfari á Verkfærakistunni er Vanda Sigurgeirsdóttir.
Verð
89.900 kr.
Styrkir
Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari uppslýsingar.