UPPSELT – Vetrargolf KVAN til Penina í Portúgal 26. janúar – 2. febrúar

Dagsetning:

26. janúar 2024, 15:30 - 2. febrúar 2024, 20:55

Staðsetning

Penina,

Deila:
Bæta við í dagatal

KVAN býður uppá spennandi vetrargolfferðir til Penina í Portúgal með Margeiri Vilhjálmssyni PGA golfkennara.

Golfferð á Penina Golf Resort á Algarve í Portúgal. Penina Hótelið er staðsett vestast á Algarve ströndinni í Portúgal í útjaðri borgarinnar Portimao. Stór sundlaugargarður og framúrskarandi sólbaðsaðstaða er við hótelið. Tveir golfvellir eru á Penina. Sir Henry Cotton Championship völlurinn sem leikið var á reglulega á Evrópumótaröðinni á árunum 1975-2000. Völlurinn er talinn meðal bestu valla í Portúgal. Resort völlurinn er 9 holu völlur í fullri lengd, þröngur og krefjandi völlur.

Alla daga er boðið uppá golfæfingar og upphitun áður en leikur hefst á Sir Henry Cotton Championship vellinum, en rástímar hafa verið forbókaðir á besta tíma dagsins. Golfmót, golfskemmtun og allt sem þarf til að prýða skemmtilega golfferð í góðum félagsskap á frábærum stað.

Frá Penina Hótelinu er stutt í alla þjónustu. Aqua verslunamiðstöðin er í 6 mínútna akstursfjarlægð. Stutt er að fara í bæina Lagos, Alvor og til borgarinnar Portimao þar sem er iðandi mannlíf.

Hámarkssfjöldi í ferð er 20 manns.

Ferðatilhögun:

Flogið með Play til Lissabon. Farið með rútu frá Lissabon til Penina (2 klst 30 mín.)

Dagur 1
15:30 Flug til Lissabon með Play
19:55 Lent í Lissabon
Áætluð koma á hótel um miðnætti

Dagur 2
10:00 Golfæfing og upphitun
12:00 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á hóteli

Dagur 3
10:00 Golfæfing og upphitun
12:00 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á hóteli
21:00 Kvöldvaka (golffræðsla)

Dagur 4
10:00 Golfæfing og upphitun
12:00 Fyrsti rástími (Golfmót)
19:30 Kvöldverður á hóteli

Dagur 5
Frjáls dagur
Hvíld eða – golf á öðrum velli í nágrenninu (ekki innifalið)
20:00 Kvöldverður í Alvor/Lagos (val, ekki innifalið)

Dagur 6
10:00 Golfæfing og upphitun
12:00 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á hóteli
20:30 Verðlaunaafhending

Dagur 7
9:00 Golfæfing og upphitun
10:40 Fyrsti rástími
19:30 Kvöldverður á Hóteli

Dagur 8
10:00 Golfæfing – samantekt (9 holur)
12:00 Útskráning af hóteli
16:30 Brottför til Lissabon flugvallar
20:55 Flug til Íslands
01:30 Lent á Íslandi – ferðalok.

Innifalið
  • Flug með Play til Lissabon – handfarangur – takska – golfsett
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Gisting í tveggja manna herbergi með sundlaugarsýn
  • Morgunverðarhlaðborð – rómað fyrir gæði og úrval
  • Internet (wifi)
  • 5 golfhringir með golfbíl
  • Forbókaðir rástímar milli 10:30 og  13:00
  • Fararstjórn
  • Golfæfingar undir leiðsögn PGA golfkennara
  • á stærsta æfingasvæði í Portúgal
  • 5 kvöldverðir með léttvíni/bjór/gosdrykkjum
Verð

365.000 kr. miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi.
415.000 kr. í einstaklingsherbergi.

Gist er á Penina Hotel & Golf Resort 

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN í gegnum netfangið inga@kvan.is eða í síma 519-3040.

Hlökkum til að ferðast með ykkur!
Starfsfólk KVAN og Margeir Vilhjálmsson PGA golfkennari