Vináttuþjálfun fyrir 7-9 ára – UPPSELT
Sjálfstraust - jafnvægi - hugrekki
Dagsetning:
14. september 2024, 13:00 - 2. nóvember 2024, 15:00
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
Hefst 14. september. Kennt á laugardögum klukkan 13:00 – 15:00
-Uppselt er á námskeiðið. Annað námskeið hefst 28. september-
Uppbyggilegt og um leið skemmtilegt námskeið sem eflir börn til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í lífi þeirra. Til þess að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mjög mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu. Allir geta verið leiðtogar ef þeir einungis fá tækifæri til þess, ásamt þjálfun og reynslu.
Fyrir hverja
Vináttuþjálfun fyrir 7-9 ára er fyrir öll börn í 2.-4. bekk grunnskóla. Námskeiðið er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga, eða hafa átt í félagslegum vanda eins og einangrun, vinaleysi, einelti og/eða höfnun.
Við minnum á að ef börn og unglingar notast við stuðningsaðila í skóla þá þurfi einnig að koma með stuðning á öll námskeið okkar fyrir ungt fólk.
Hvað get ég lært
Að loknu námskeiði hafa börnin fengið þjálfun og fræðslu um samskipta-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Það þýðir til dæmis að þau hafa lært ýmsar aðferðir við að eignast og halda vinum, sem og að takast á við ágreining og neikvæðar athugasemdir. Þau hafa einnig lært um mikilvægi samvinnu og umburðarlyndis, ásamt því að hafa lært hvernig þau geta verið jákvæðir leiðtogar í hópnum sínum, fjölskyldu og eigin lífi. Börn í dag eru að takast á við ýmsar áskoranir í samskiptum, félagsfærni og vináttu og hægt er að undirbúa börn undir þessar og fleiri áskoranir. Þau munu svo sannarlega fá tækifæri til að blómstra og verða besta útgáfan af sjáflum sér á þessu námskeiði.
Skipulag
Námskeiðið er kennt á laugardögum frá klukkan 13:00-15:00 í 8 skipti, 2 klst. í senn, einu sinni í viku. Milli tímanna eru tveir félagslegir viðburðir, t.d. spila-, pizzukvöld og/eða annað skemmtilegt. Einnig er fræðsluhittingur fyrir foreldra innifalinn. Námskeiðið fer fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi.
Verð
89.000 kr.
Styrkir
Hægt er að nýta frístunda- og hvatastyrki sveitarfélaga upp í námskeiðsgjöld. Fyrir aðstoð við ráðstöfun þeirra styrkja þá endilega hafið samband við okkur í gegnum netfangið kvan@kvan.is
Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari uppslýsingar.
Birgitta Ramsey, móðir þátttakanda á námskeiði fyrir 10-12 ára
Dóttir mín var alsæl með námskeiðið sem hún fór áhjá KVAN fyrir 10-12 ára. Það kemur skemmtilega á óvart því venjulega er hún ekki til í neitt nýtt. Hún er óörugg í nýjum aðstæðum og hefði örugglega ekki valið að koma ein á námskeið ef ég hefði ekki skráð hana sjálf...
Lesa meira »Kristjana Sigurðardóttir, foreldri þátttakanda á Vináttuþjálfun 7-9 ára
Ég mæli 100% með Lilju, sem þjálfara. Skemmtilegt að sjá hvað hún er einstaklega fær í framkomu og stýrir til dæmis foreldrafundinum vel. Það sem mitt barn hefur lært á námskeiðinu...
Lesa meira »Foreldri þátttakanda á Vináttuþjálfun KVAN
Lilja Cederborg var einn af þjálfurum drengsins okkar á námskeiði KVAN. Lilja hefur mikinn eldmóð fyrir starfi sínu og gefur sig alla í vinnuna með börnunum. Hún tók alltaf vel á móti...
Lesa meira »Íris Björk Eysteinsdóttir, foreldri
Elva Dögg hafði gríðarlega jákvæð áhrif á dóttur mína. Ég hreinlega horfði á hana vaxa og styrkjast í gegnum námskeiðið. Elva Dögg gaf mikið af sér og var fagleg í kennslu sinni og samskiptum...
Lesa meira »Írena Dögg McCabe, móðir barns á Vináttuþjálfun 7-9 ára
Stelpan kom til ykkar eftir að hafa orðið fyrir einelti í rúmt ár í skólanum sem hún er í, sem hefur haft markandi áhrif á hana. Mér var bent á að KVAN væri mögulega staður fyrir hana að fara og fá styrk og verkfæri...
Lesa meira »