Vináttuþjálfun fyrir 7-9 ára

Dagsetning:

5. febrúar 2022, 10:00 - 26. mars 2022, 12:00

Staðsetning

KVAN, Kópavogur

Deila:
Bæta við í dagatal

Hefst 5. febrúar. Kennt á laugardögum klukkan 10:00 – 12:00

ATHUGIÐ – 1 sæti var að losna. Næsta námskeið hefst þann 19. mars. Nánari upplýsingar og skráning hér:
https://kvan.is/events/vinattuthjalfun-fyrir-7-9-ara-5/

Uppbyggilegt og um leið skemmtilegt námskeið sem eflir börn til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í lífi þeirra. Til þess að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mjög mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu. Allir geta verið leiðtogar ef þeir einungis fá tækifæri til þess, ásamt þjálfun og reynslu.

Fyrir hverja
Vináttuþjálfun fyrir 7-9 ára er fyrir öll börn í 2.-4. bekk grunnskóla. Námskeiðið er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga, eða hafa átt í félagslegum vanda eins og einangrun, vinaleysi, einelti og/eða höfnun.

Við minnum á að ef börn og unglingar notast við stuðningsaðila í skóla þá þurfi einnig að koma með stuðning á öll námskeið okkar fyrir ungt fólk.

Hvað get ég lært
Að loknu námskeiði hafa börnin fengið þjálfun og fræðslu um samskipta-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Það þýðir til dæmis að þau hafa lært ýmsar aðferðir við að eignast og halda vinum, sem og að takast á við ágreining og neikvæðar athugasemdir. Þau hafa einnig lært um mikilvægi samvinnu og umburðarlyndis, ásamt því að hafa lært hvernig þau geta verið jákvæðir leiðtogar í hópnum sínum, fjölskyldu og eigin lífi. Börn í dag eru að takast á við ýmsar áskoranir í samskiptum, félagsfærni og vináttu og hægt er að undirbúa börn undir þessar og fleiri áskoranir. Þau munu svo sannarlega fá tækifæri til að blómstra og verða besta útgáfan af sjáflum sér á þessu námskeiði.

Skipulag
Námskeiðið er kennt á laugardögum frá klukkan 10:00-12:00 í 8 skipti, 2 klst. í senn, einu sinni í viku. Milli tímanna eru tveir félagslegir viðburðir, t.d. spila-, pizzukvöld og/eða annað skemmtilegt. Einnig er fræðsluhittingur fyrir foreldra innifalinn. Námskeiðið fer fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi.

Verð
88.000 kr.

Styrkir
Hægt er að nýta frístunda- og hvatastyrki sveitarfélaga upp í námskeiðsgjöld. Fyrir aðstoð við ráðstöfun þeirra styrkja þá endilega hafið samband við okkur í gegnum netfangið kvan@kvan.is

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari uppslýsingar.