Engar venjulegar ferðir!
Markmið
Námskeið KVAN Travel erlendis miða að því að gefa fagfólki á Íslandi innsýn og þekkingu á menntamálum í öðrum löndum. Við viljum efla fagfólk í starfi, kynna nýjar hugmyndir, stefnur og starfshætti á sviði menntamála. Markmið okkar er að efla samkennd og samvinnu fagfólks og stuðla að sameiginlegri sýn þeirra.
Fyrir hverja?
Fagfólk sem starfar með börnum og ungu fólki í skóla- og frístundastarfi.
Hvað er gert?
Í samvinnu við þátttakendur þróum við námskeiðin þannig þau mæti væntingum þeirra og þörfum. Möguleiki er á að fara í heimsóknir í skóla á mismunandi aldursstigum, hlusta á erlenda fyrirlesara, vinna markvisst með hópefli og liðsheildarþjálfun fyrir starfshópinn, tjáning og sjálfstyrking, markmiðasetning og leiðtogaþjálfun.
Ekkert mál að sameina skemmtilega endurmenntunarferð og njóta einnig frítíma, skoða sig um og versla í sömu ferðinni.
Hvert er farið?
Við bjóðum upp á sérsniðnar ferðir til m.a Englands, Skotlands, Þýskalands og Kanada. Á öllum þessum stöðum erum við í sterkum tengslum við fagfólk í menntamálum.
Leiðbeinendur
Í námsferðum KVAN Travel leitum við eftir að fá til liðs við okkur sérfræðinga í menntamálum frá því landi sem heimsótt er ásamt okkar leiðbeinendum og fararstjórum. Starfsmenn KVAN Travel hafa áralanga reynslu í skipulagningu ferða og fararstjórn erlendis. Byggt á sinni reynslu búa þau þannig um ferðirnar að allt gangi vel fyrir sig í hverri ferð.
Undirbúningur og skipulag
KVAN Travel sér um allan undirbúning fyrir ferðina með því að hitta leiðtoga þess hóps sem er að fara í ferðina, þarfagreina og búa til skipulag í kringum óskir viðskiptavina.
Greitt er eitt fast verð fyrir hvern aðila og allt er innifalið, flug, gisting, akstur til og frá flugvelli, námskeið og námskeiðsgögn.
Anna Lydia Sigurðardóttir, verkefnastjóri KVAN Travel, veitir allar upplýsingar um námsferðir erlendis: annasig@kvan.is eða í síma 519 3040