KVAN fyrir Grindvíkinga – 7-9 ára​

Valdefling í gegnum leik og lærdóm - fyrir Grindvíkinga

Dagsetning:

2. nóvember 2025, 13:00 - 7. desember 2025, 15:00

Staðsetning

Húsnæði Rauða Krossins í Reykjanesbæ, Reykjanesbær

Deila:
Bæta við í dagatal

Við í KVAN vitum að Grindvíkingar eru sérfræðingar í eigin lífi. Þess vegna viljum við móta námskeiðin með ykkur – ekki bara fyrir ykkur. Megnið af efninu byggir á okkar traustu og margreyndu KVAN-námskeiðum, en við leggjum jafnframt áherslu á að hlusta eftir þörfum samfélagsins og laga námskeiðin að þeim. 

Hefst 2. nóvember, kennt á sunnudögum kl. 13:00-15:00

Uppbyggilegt og um leið skemmtilegt námskeið sem eflir börn til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í lífi þeirra. Til þess að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mjög mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu. Allir geta verið leiðtogar ef þeir einungis fá tækifæri til þess, ásamt þjálfun og reynslu.

Fyrir hverja
KVAN fyrir 7-9 ára er fyrir öll börn í 2.-4. bekk grunnskóla. Námskeiðið er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga, eða hafa átt í félagslegum vanda eins og einangrun, vinaleysi, einelti og/eða höfnun. Öll börn ættu að geta styrkst á námskeiðinu.

Við minnum á að ef börn og unglingar notast við stuðningsaðila í skóla þá þurfi einnig að koma með stuðning á öll námskeið okkar fyrir ungt fólk.

Hvað get ég lært
Að loknu námskeiði hafa börnin fengið þjálfun og fræðslu um samskipta-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Það þýðir til dæmis að þau hafa lært ýmsar aðferðir við að eignast og halda vinum, sem og að takast á við ágreining og neikvæðar athugasemdir. Þau hafa einnig lært um mikilvægi samvinnu og umburðarlyndis, ásamt því að hafa lært hvernig þau geta verið jákvæðir leiðtogar í hópnum sínum, fjölskyldu og eigin lífi. Börn í dag eru að takast á við ýmsar áskoranir í samskiptum, félagsfærni og vináttu og hægt er að undirbúa börn undir þessar og fleiri áskoranir. Þau munu svo sannarlega fá tækifæri til að blómstra og verða besta útgáfan af sjáflum sér á þessu námskeiði.

Skipulag
Námskeiðið er kennt í 6 skipti, 2 klst. í senn, einu sinni í viku. Þátttakendur fá handbók og fleiri verkfæri til að nota á námskeiðinu og við áframhaldandi vinnu. Námskeiðin fara fram í Reykjanesbæ í húsnæði Rauða Krossins, Smiðjuvöllum 9.

Þjálfari
Þjálfari á námskeiðinu er Þórhildur Einarsdóttir. 

Verð

Námskeiðið er í boði fyrir Grindvíkinga án endurgjalds.

Skráðu þig núna

Tegund viðburðar: Fjöldi: Einingarverð:
7-9 ára Grindvíkingar
14 Left:
Fjöldi:
Einingarverð: Free

Skilaboð til KVAN

Fjöldi: Samtals: