(vor) KVAN fyrir Grindvíkinga – 16-19 ára

Valdefling í gegnum leik og lærdóm – fyrir Grindvíkinga

Dagsetning:

8. apríl 2026, 19:00 - 29. apríl 2026, 22:00

Staðsetning

KVAN salur, Kópavogur

Deila:
Bæta við í dagatal

Við í KVAN vitum að Grindvíkingar eru sérfræðingar í eigin lífi. Þess vegna viljum við móta námskeiðin með ykkur – ekki bara fyrir ykkur. Megnið af efninu byggir á okkar traustu og margreyndu KVAN-námskeiðum, en við leggjum jafnframt áherslu á að hlusta eftir þörfum samfélagsins og laga námskeiðin að þeim. 

Skemmtilegt og uppbyggilegt námskeið sem aðstoðar þig við að takast á við aukinn hraða, álag, kröfur og þær félagslegu aðstæður sem ungt fólk stendur frammi fyrir í dag. Vilt þú verkfæri til að auka sjálfstraust þitt og hugrekki til að þora að standa á eigin skoðunum, bæta samskipti og leiðtogahæfni sem og læra að setja þér markmið og fylgja þeim?

Fyrir hverja

KVAN fyrir 16-19 ára er fyrir ungt fólk hvort sem það er í menntaskóla, vinnu eða öðru og hafa áhuga á því að efla sig í námi, íþróttum, tónlist eða almennt í lífinu.

Hvað get ég lært

Á námskeiði KVAN ættir þú að geta fundið aukinn kraft, meira jafnvægi og aukið sjálfstraust. Við hjálpum þér að finna út þína helstu styrkleika og þannig eykst sjálfstraustið og viðhorfið verður betra. Við þjálfum þig í að tala fyrir framan hóp af fólki og kennum einfaldar og áhrifaríkar reglur í tjáningu. Við förum í gegnum samskiptin í okkar lífi og fáum tækifæri til þess að þróa leiðtogahæfni og laða fram það besta í okkur og öðrum. Með því að styrkja sjálfstraustið ertu meðvitaðari um eigin heilsu og hefur nú verkfæri til þess að láta ekki kvíða, álag eða streitu ná tökum á þér. Þú munt kunna leiðir til að sjá lausnir en ekki vandamál og lærir að setja mörk.

Námskeiðið er persónulegt og nýtist þér vel út í lífið.

Skipulag

Námskeiðið er kennt í 4 skipti, 3 klst. í senn, einu sinni í viku. Síðasti tíminn er einstaklingstími sem haldinn er á þeim tíma sem þátttakanda hentar í samráði við þjálfara. Þátttakendur fá handbók og fleiri verkfæri til að nota á námskeiðinu og við áframhaldandi vinnu. Námskeiðin fara fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi.

Þjálfari námskeiðsins er Gunnar Þorsteinsson

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið [email protected] til þess að fá nánari upplýsingar.

Verð
Námskeiðið er í boði fyrir Grindvíkinga án endurgjalds.

Skráðu þig núna

Tegund viðburðar: Fjöldi: Einingarverð:
16-19 ára Grindvíkingar
25 Left:
Fjöldi:
Einingarverð: Free

Skilaboð til KVAN

Fjöldi: Samtals:

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk