KVAN fyrir Grindvíkinga
Valdefling í gegnum lærdóm og leik fyrir Grindvíkinga á öllum aldri - án endurgjalds
Um verkefnið Með þér
KVAN býður Grindvíkingum upp á skemmtileg og hagnýt námskeið, vinnustofur og viðburði án endurgjalds!
Markmiðið er að styrkja og efla einstaklinga í þeim áskorunum sem breyttar aðstæður hafa í för með sér.
Námskeiðin verða öll haldin á höfuðborgarsvæðinu vorið 2026. Efnið byggir á margreyndum og árangursríkum aðferðum KVAN — hagnýt verkfæri sem eru kennd á skapandi og skemmtilegan hátt. Lesið meira um námskeiðin hér að neðan.
Við hjá KVAN trúum því að Grindvíkingar búi yfir þeim krafti sem þarf – Við viljum hjálpa til við að virkja þann kraft.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi og í samráði við Grindavíkurbæ. Verkefnið er stutt af Rio Tinto.
Skráðu þig á námskeið hér!
Hvað er KVAN?
Í mörg ár hefur KVAN sérhæft sig í að efla sjálfstraust, samskipti og innri styrk. Við vinnum með jákvæða orku – að hjálpa fólki að finna eigin kraft og nýta hann í lífinu. Þjálfarar okkar eru fjölbreyttir en eiga það sameiginlegt að koma með reynslu, fagmennsku og góða orku inn í hvert verkefni.
Við leggjum áherslu á að skapa vönduð og skemmtileg námsferli sem styrkja fólk í daglegu lífi – hvort sem það er að byggja upp sjálfstraust, finna betra jafnvægi eða efla leiðtogafærni.
KVAN starfar með fjölbreyttum hópum:
- Fullorðnum sem vilja ná auknum krafti og blómstra í lífi og starfi.
- Ungt fólk sem fær tækifæri til að þróa hæfni sína á uppbyggjandi og skemmtilegan hátt.
Fagaðilum sem vinna með börnum og ungmennum og vilja dýpka færni sína með ráðgjöf, námskeiðum og fyrirlestrum.
Fyrirtækjum sem vilja efla stjórnendur og starfsfólk með markþjálfun, námskeiðum og sérsniðinni ráðgjöf.
Og í gegnum KVAN Travel, þar sem við sköpum einstakar ferðir fyrir fagfólk, íþróttafélög, fyrirtæki og einstaklinga sem vilja sameina ferðalög, lærdóm og lífsstíl.
Vilt þú hafa áhrif?
Þetta verkefni er fyrir ykkur, Grindvíkinga – er því ekki upplagt að þið hafi eitthvað að segja um innihaldið og stefnuna? Við viljum heyra raddir ykkar – við erum að hlusta. Smelltu hér til að senda inn ábendingu
Þátttakandi, á kvennakvöldi fyrir grindvískar konur
Það er mikilvægt að búa til vettvang þar sem Grindvíkingar geta átt gleðilegar samverustundir án þess að þurfa að halda grímunni á Þátttakandi, Kvennakvöld fyrir grindvískar konur
Lesa meira »
Magnús Már Jakobsson, þátttakandi í KVAN fyrir fullorðna Grindvíkinga
Geggjað hópefli og frábær upplifun. Magnús Már Jakobsson KVAN fyrir fullorðna Grindvíkinga
Lesa meira »
Klara Halldórsdóttir, þátttakandi í KVAN fyrir fullorðna Grindvíkinga
Þjálfarinn náði vel til okkar og það mynduðust strax traust og falleg samskipti milli okkar í hópnum. Þetta voru gæðastundir sem ég mæli heilshugar með. Klara Halldórsdóttir KVAN fyrir fullorðna Grindvíkinga
Lesa meira »
Arna Þ. Björnsdóttir, þátttakandi á kvennakvöldi fyrir grindvískar konur
Ég hef setið eitt námskeið og farið á konukvöld hjá KVAN. Hvort tveggja mjög ánægjulegt og mikil hlýja, gleði og virðing sem einkennir allt viðmót. Arna Þ. Björnsdóttir Kvennakvöld fyrir grindvískar konur
Lesa meira »
Þátttakandi á kvennakvöldi fyrir grindvískar konur
Alveg frábærar og skemmtilegar snertu mann samt á tilfinningarnar með því að deila sinni lífsreynslu góð áminningu um að við getum verið hamingjusöm þrátt fyrir áföllin ef við leyfum okkur það. Þátttakandi Kvennakvöld fyrir grindvískar konur
Lesa meira »
Petra Rós, þátttakandi á kvennakvöldi fyrir grindvískar konur
Að fá að hitta samfélagið sitt sem maður saknar svo er bara ómetanlegt í þessu skrýtna ferli okkar. Hitta vinkonur, nágranna, frænkur, skólasystur og allar hinar konurnar var æðislegt. Svo skemmtilegt kvöld sem gaf manni hlýju í Grindavíkurhjartað. Takk fyrir mig. Petra Rós Kvennakvöld fyrir grindvískar konur
Lesa meira »




