KVAN salurinn
KVAN salurinn
Góður fjölnota salur á Kársnesi Kópavogi
Hægt er að leigja KVAN salinn fyrir fundi, námskeið, vinnustofur og fleira. KVAN salurinn er nýuppgerður og góður fundarsalur miðsvæðis á Kársnesinu í Kópavogi. Salurinn er staðsettur á neðri hæð Safnaðarheimilis Kópavogskirkju en gengið er er beint inn í húsið frá bílastæði á neðri hæðinni.
KVAN salurinn tekur um 40 manns í sæti við borð en rúmlega 50 manns þegar raðað er upp í leikhúsuppstillingu.
Mögulegt er að raða upp stólum og borðum á ýmsan hátt eftir tilefni, U-borð uppstilling, skólastofu uppstilling eða leikhús uppstilling svo eitthvað sé nefnt.
Í salnum er stór og fullkominn snertiskjár. Skjárinn er nettengdur og mögulegt er að skrifa á skjáinn glósur og skýringar á meðan fundi stendur. Eldhúsinnrétting með vask og ísskáp eru í salnum ásamt kaffi- og vatn/sódavatnsvél. Ekki er eldunaraðstaða né uppþvottavél.
Við enda rýmisins eru stórir gluggar sem hægt er að opna út á veröndina framan við salinn. Í anddyri er lítið viðtalsherbergi fyrir allt að 4 stóla, fatahengi og salernisaðstaða.
Salurinn hentar mjög vel fyrir fundi, fyrirlestra, kennslu og námskeið.
