Ferð eldri borgara Grindavíkur til Vestmannaeyja 28. maí

Jákvæð næring inn í daginn

Dagsetning:

28. maí 2026, 07:45 - 28. maí 2026, 20:00

Staðsetning

Vestamannaeyjar,

Deila:
Bæta við í dagatal

Fimmtudaginn 28. maí 2026

 

KVAN ætlar að blása til dagsferðar með eldri borgara Grindavíkur til Vestmannaeyja fimmtudaginn 28. maí næstkomandi. Ferðin á í senn að vera skemmtileg, fræðandi og nærandi fyrir besta fólk Grindavíkur, tækifæri til að kynnast skemmtilegau fólki úr samfélagi Vestmannaeyja, skoða sögu og njóta. Við fáum okkur dýrindis mat á Tanganum, skoðað verður safnið Eldheimar, farið rúnt um eyjuna og stoppað við í kaffi hjá félagi eldri borgara í Vestmannaeyjum. Ferðin er eldri borgurum frá Grindavík að kostnaðarlausu að undanskyldum hádegismat á Tanganum en þar er boðið upp á þrjár tegundir af dýrindis súpu og með henni. KVAN býður upp á kaffi og kökusneið að hádegismat loknum.

Farið verður með rútu sem leggur af stað frá Nettó Krossmóa og stoppar svo einnig við Breiðholtskirkju. Ef einhverjir áhugasamir eru á suðurlandinu er einnig hægt að bæta við stoppi við Byko á Selfossi áður en ekið er áfram að Landeyjarhöfn.

Athugið að mikilvægt er að taka fram í reitnum “Skilaboð til KVAN” hvort þið komið í rútuna í Krossmóum Reykjanesbæ, Breiðholtskirkju eða Selfossi. – Takmörkuð sæti eru í boði svo það er mikilvægt að skrá sig. 

Dagskrá ferðarinnar er svohljóðandi:

  • 7:30 – Rútan leggur af stað frá Nettó Krossmóa
  • 8:20 – Rútan stoppar við Breiðholtskirkju
  • 10:45 – Herjólfur siglir með hópinn frá Landeyjarhöfn til Vestmannaeyja
  • 12:00 – Hádegisverður á Tanganum Vestmannaeyjum
  • 13:15 – Skoðunarferð um eyjuna
  • 14:00 – Safnið Elheimar skoðað
  • 15:00 – Heimsókn til félags eldri borgara Vestmannaeyja
  • 17:00 – Herjólfur siglir til baka til Landeyjarhafnar

Áætluð koma til Reykjanesbæjar aftur um kl. 20:00 (athugið að tímasetningar geta breyst lítillega).

Með í ferðinni verða tveir starfsmenn KVAN til aðstoðar Bogi Hallgrímsson Grindvíkingur og Ásta Kristjánsdóttir Vestmannaeyingur – þau lofa mikilli gleði.

Ef einhverjar spurningar vakna þá má endilega heyra í okkur í síma 519 3040 eða í gegnum netfangið [email protected].

Skráðu þig núna

Tegund viðburðar: Fjöldi: Einingarverð:
Vestmannaeyjaferð - eldri borgar Grindavík
45 Left:
Fjöldi:
Einingarverð: Free

Skilaboð til KVAN

Fjöldi: Samtals:

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk