Á bak við grímuna

Á bakvið grímuna er einlægur og áhrifaríkur fyrirlestur þar sem við tökum á því sem oft er ósagt – pressuni, óörygginu og mótlætinu sem leynist undir yfirborðinu. Fyrirlesararnir, Agnar Smári og Emma eru systkini sem hafa oft verið kölluð athyglissjúk og „trúðarnir“ í hópnum, þau sem grínast mest og láta mest fyrir sér fara. En á bakvið það hafa þau bæði þurft að takast á við eigin erfiðleika og lært að fela sig á bakvið grímu.

Með persónulegum sögum og raunverulegum dæmum opna þau umræðuna um það sem sést ekki alltaf: sjálfsmynd, samanburð, mótlæti í íþróttum og innri baráttu. Agnar og Emma fjalla bæði um erfiðleika í íþróttum og daglegu lífi – og deilum því sem hefur hjálpað þeim að komast í gegnum þá erfiðleika og byggja sig upp aftur.

Fyrirlesturinn henntar sérstaklega vel fyrir ungt íþróttafólk – en snertir alla sem vilja skilja betur sjálfan sig og aðra.

Fyrirlesarar eru þau Agnar Smári Jónsson og Emma Steinsen.

 

Hér má sjá nokkur ummæli sem nemendur höfðu að segja eftir fyrirlesturinn:

  • „Besti fyrirlestur sem ég hef farið á – ég hlustaði allan tímann og tók allt inn.“
  • „Skemmtilegasti fyrirlestur sem ég hef farið á. Þau voru fyndin, einlæg og ótrúlega gaman að hlusta á þau.“
  • „Þau héldu athyglinni minni allan tímann og náðu virkilega til mín.“
  • „Mér fannst þau standa sig frábærlega – mjög skemmtileg og lifandi framsetning.“

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk