Eltu drauminn þinn – Hvatning til að rækta ástríðu þína
Dagsetning:
8. janúar 2025, 20:00 - 8. janúar 2025, 21:15
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
KVAN býður nú upp á opna fyrirlestra. Fyrirlestrarnir eru í u.þ.b. 60 mínútur og verða haldnir í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi. Takmarkað sætaframboð er á hvern fyrirlestur og því er um að gera að skrá sig strax.
Miðvikudaginn 8. janúar klukkan 20:00
Allir þekkja einstaklinga í sínu lífi sem eru alltaf að setja sér markmið og ná þeim. Þeir virðast keyrast áfram af endlausum drifkraft og vinnusemi. Hvað er það sem gerir suma einstaklinga góða í að ná markmiðum sínum og upplifa draumana sína? Hvernig er best að setja sér markmið? Hvaða markmið á ég að setja mér? Afhverju ætti ég að setja mér markmið yfir höfuð?
Í þessum fyrirlestri er farið í það að svara öllum þessum spurningum og fleirum. Einnig er kafað ofan í það sem stoppar marga í að ná markmiðum sínum og hvernig hægt er að komast hjá því.
Fyrirlesarinn Magnús Jóhann er með BS gráðu í sálfræði, starfar sem einkaþjálfari, er íslandsmeistari í borðtennis og einstaklega metnaðarfullur. Hér talar hann um þessi mál á opinn hátt með persónulegum sögum og fer yfir það hvernig hægt sé að sigrast á þessum algengu vandamálum. Fyrirlesturinn hentar unglingum, ungmennum og ungum fullorðnum einstaklega vel sem vilja innspýtingu í líf sitt og hvatningu til að elta drauma sína.
Fyrirlesarar
Magnús Jóhann Hjartarson er fyrirlesari kvöldsins.
Verð
3.500 kr.