Ferð eldri borgara Grindavíkur til Vestmannaeyja 28. maí
Jákvæð næring inn í daginn
Dagsetning:
28. maí 2026, 07:45 - 28. maí 2026, 20:00
Staðsetning
Vestamannaeyjar,
Fimmtudaginn 28. maí 2026
KVAN ætlar að blása til dagsferðar með eldri borgara Grindavíkur til Vestmannaeyja fimmtudaginn 28. maí næstkomandi. Ferðin á í senn að vera skemmtileg, fræðandi og nærandi fyrir besta fólk Grindavíkur, tækifæri til að kynnast skemmtilegau fólki úr samfélagi Vestmannaeyja, skoða sögu og njóta. Við fáum okkur dýrindis mat á Tanganum, skoðað verður safnið Eldheimar, farið rúnt um eyjuna og stoppað við í kaffi hjá félagi eldri borgara í Vestmannaeyjum. Ferðin er eldri borgurum frá Grindavík að kostnaðarlausu að undanskyldum hádegismat á Tanganum en þar er boðið upp á þrjár tegundir af dýrindis súpu og með henni. KVAN býður upp á kaffi og kökusneið að hádegismat loknum.
Farið verður með rútu sem leggur af stað frá Nettó Krossmóa og stoppar svo einnig við Breiðholtskirkju. Ef einhverjir áhugasamir eru á suðurlandinu er einnig hægt að bæta við stoppi við Byko á Selfossi áður en ekið er áfram að Landeyjarhöfn.
Athugið að mikilvægt er að taka fram í reitnum “Skilaboð til KVAN” hvort þið komið í rútuna í Krossmóum Reykjanesbæ, Breiðholtskirkju eða Selfossi. – Takmörkuð sæti eru í boði svo það er mikilvægt að skrá sig.
Dagskrá ferðarinnar er svohljóðandi:
- 7:30 – Rútan leggur af stað frá Nettó Krossmóa
- 8:20 – Rútan stoppar við Breiðholtskirkju
- 10:45 – Herjólfur siglir með hópinn frá Landeyjarhöfn til Vestmannaeyja
- 12:00 – Hádegisverður á Tanganum Vestmannaeyjum
- 13:15 – Skoðunarferð um eyjuna
- 14:00 – Safnið Elheimar skoðað
- 15:00 – Heimsókn til félags eldri borgara Vestmannaeyja
- 17:00 – Herjólfur siglir til baka til Landeyjarhafnar
Áætluð koma til Reykjanesbæjar aftur um kl. 20:00 (athugið að tímasetningar geta breyst lítillega).
Með í ferðinni verða tveir starfsmenn KVAN til aðstoðar Bogi Hallgrímsson Grindvíkingur og Ásta Kristjánsdóttir Vestmannaeyingur – þau lofa mikilli gleði.
Ef einhverjar spurningar vakna þá má endilega heyra í okkur í síma 519 3040 eða í gegnum netfangið [email protected].
