Leikskólinn Mánahvoll til Kaupmannahafnar – staðfestingargjald
Dagsetning:
17. maí 2024, 07:00 - 21. maí 2024, 15:00
Staðsetning
,
Góðan daginn,
Hér getur þú gengið frá greiðslu 40.000 kr. staðfestingargjalds fyrir endurmenntunarferð leikskólans Mánarhvolls til Kaupmannahafnar 17.-21. maí 2024. Staðfestingargjaldið er óendurkræft og ganga verður frá greiðslu gjaldsins í síðasta lagi þann 6. nóvember 2023.
Heildarverð ferðar er 169.900 krónur ef gist er í tveggja manna herbergi og 214.900 kr. ef gist er í einstaklingsherbergi. Upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá eftirstöðvum verða sendar síðar en ganga þarf frá lokagreiðslu eigi síðar en 8 vikum fyrir brottför.
Hægt er að greiða með kreditkorti eða Netgíró.
- Flug með Play fram og til baka
- 20 kg. Farangursheimild + lítill handfarangur (bakpoki t.d.)
- Gisting á The Square Hotel
- Morgunmatur innifalinn alla daga + kaffi og meðlæti á námskeiðsdögum
- Námskeið KVAN í heilan dag eða 2 hálfa daga
- Leikskólaheimsókn
- Fararstjórn með starfsmanni KVAN
- Akstur til og frá flugvelli
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN Travel í síma 519-3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is
Hlökkum til að ferðast með ykkur!
Kær kveðja,
Starfsfólk KVAN Travel