OFUR ÞÚ 2027
Byrjaðu árið á þér!
Dagsetning:
9. janúar 2027, 10:00 - 9. janúar 2027, 16:00
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
Laugardaginn 9. janúar kl. 10:00-16:00
Hvernig væri að byrja árið 2027 á því að fjárfesta í sjálfri/sjálfum þér?
Ofur þú 2027 er markmiðadagur á vegum KVAN þar sem þú færð tækifæri til að staldra við, kynnast sjálfri/sjálfum þér betur og leggja grunn að árangursríku og innihaldsríku ári.
Við skoðum hvað gerir þig einstaka/n, hvar styrkleikar þínir liggja og hvernig þú getur nýtt þá til að ná markmiðum þínum. Með hjálp styrkleikaprófsins VIA og Working Genius færðu nýja innsýn í eigin styrkleika, áhugasvið og það sem gefur þér orku.
💡 Á Ofur þú 2027 færðu meðal annars að:
- 🎯 Setja þér skýr og raunhæf markmið fyrir árið 2027.
- 💪 Kynnast styrkleikum þínum og læra að nýta þá betur.
- 🔍 Uppgötva hvað veitir þér orku, gleði og drifkraft.
- 🚀 Búa til skýra sýn á hvert þú vilt stefna og hvernig þú ætlar að komast þangað.
Þetta er dagur fyrir þig sem vilt ekki bara láta árið líða, heldur taka meðvitaða ákvörðun um hvernig þú vilt lifa því.
Gefðu þér tíma til að finna kraftinn í sjálfri/sjálfum þér, skerpa sýnina og mæta nýju ári með meiri sjálfsvitund, skýrari stefnu og trú á eigin getu.
Þjálfarar námskeiðsins
Jón Halldórsson og Anna Steinsen, þjálfarar og eigendur KVAN, leiða daginn og hjálpa þér að finna styrkleika þína, skerpa fókusinn og móta markmið sem skipta þig máli.
Verð
29.900 kr.
Nýtt ár. Ný markmið. Ný tækifæri. Enn meira þú!
🌟 Ofur þú 2027 – frábær byrjun á nýju ári með KVAN.
Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið [email protected] ef þörf er á nánari uppslýsingum.
