Valdefling og leiðtogaþjálfun ÖBÍ og KVAN
Dagsetning:
31. mars 2022, 19:00 - 21. apríl 2022, 21:00
Staðsetning
KVAN, Kópavogur
Hefst 31. mars, kennt á fimmtudögum kl. 18:00-21:00
Öryrkjabandalag Íslands og KVAN bjóða í samstarfi upp á námskeið fyrir félagsfólk aðildafélaga ÖBÍ. Námskeiðið er sérhannað og skipulagt af KVAN en starfsmenn og stjórnendur fyrirtækisins hafa mikla menntun og áralanga reynslu í námskeiðahaldi. Á námskeiðinu geta þátttakendur öðlast verkfæri til að auka sjálfstraust, læra markvissa markmiðasetningu, bæta leiðtogafærni sína og valdeflingu.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir 18-35 ára einstaklinga úr aðildarfélögum ÖBÍ. Öryrkjabandalag Íslands óskar eftir 2-3 tilnenfningum frá hverju aðildarfélagi.
Hvað get ég lært?
Hvort sem þátttakendur vilja styrkja sig í persónulega lífinu eða annarsstaðar, þá ættu allir að geta grætt eitthvað á námskeiði KVAN. Hér gefur að líta nokkra þeirra efnisþátta sem farið er í á námskeiðinu.
Markmiðasetning og framtíðarsýn
Við kennum þátttakendum að setja þér skýra framtíðarsýn og markmið bæði fyrir sjálfa sig eða sitt vinnustaðateymi. Aðferðarfræðin sem við kennum eykur líkur á því að markmið náist og framtíðarýn þátttakenda verði að veruleika.
Samskipti
Við kennum aðferðir við að teikna upp samskiptakort, kortleggja samskipti í starfi og einkalífi.
Við kennum þátttakendum aðferðarfræði sem að hjálpar þei að þróa með sér enn betri samskiptafærni með áherslu á jákvæð samskipti.
Leiðtogahæfni
Við kennum aðferðarfræði jákvæðra leiðtoga og listina við að hafa áhrif á hóp fólks til þess að hjálpa þeim að ná settum markmiðum. Þetta getur til að mynda snúið að því að fá samstarfsfólk í að stefna að settu marki. Ekki síður snýr þetta að því að vera leiðtogi í eigin lífi, valdefla sjálft sig og ná settum markmiðum.
Hvatnig og hrós
Við kennum aðferðarfræði sem þátttakendur geta nýtt sér til að efla hæfileika sína í hvatningu og hrósi dags daglega.
Eftir námskeið hjá KVAN ættu þátttakendur að geta fundið aukinn kraft, meira jafnvægi og aukið sjálfstraust. Við þjálfumst í að tala fyrir framan hóp af fólki og kennum einfaldar og áhrifaríkar reglur í tjáningu. Við styrkjum sjálfstraustið og trú á eigin getu ásamt því að finna leiðir til að vera í meira jafnvægi sem nýtist okkur vel þegar takast þarf á við breytingar hvort sem það er á starfsvettvangi eða lífinu sjálfu. Þátttakendur geta lært að finna leið til að vera besta mögulega útgáfan af sér sjálfri/sjálfum sem nýtist þér bæði í leik og starfi.
Skipulag
Námskeiðið er kennt í 4 skipti, 2 klst. í senn, einu sinni í viku. Námskeiðið hefst þann 31. mars og lýkur þann 21. apríl. Kennt verður dagana 31. mars, 7. apríl, 12. apríl og 21. apríl. Fyrstu þrjú skipti námskeiðsins fara fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi og það fjórða í húsnæði ÖBÍ að Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Þar sem Öryrkjabandalag Íslands niðurgreiðir langstærstan hluta kostnaðar er námskeiðsgjaldið aðeins 2.000 krónur á þátttakanda sem greiðist þegar umsókn er staðfest.
Námskeiðið er aðeins ætlað félagsmönnum aðildarfélaga ÖBÍ. Tilnefningar aðildafélaga skal senda á netfangið margretlilja@obi.is – tekið er við 2-3 tilnefningum hvers aðildafélags.