Vináttuþjálfun Umhyggju og KVAN, fyrir 7-9 ára
Dagsetning:
19. ágúst 2021, 16:30 - 7. október 2021, 18:30
Staðsetning
,
Hefst 19. ágúst
Kennt á fimmtudögum kl.16:30-18:30
Umhyggja og KVAN bjóða í samstarfi upp á spennandi og vandað námskeið í vináttuþjálfun fyrir 7-9 (2.-4. bekk) ára systkini langveikra barna. Námskeiðið er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga eða hafa átt í félagslegum vanda, eins og einangrun, vinaleysi, einelti og höfnun.
Námskeiðið er sérhannað og skipulagt af KVAN en starfsmenn og stjórnendur fyrirtækisins hafa mikla menntun og áralanga reynslu í námskeiðahaldi fyrir ungt fólk til að ýta undir meira sjálfstraust, bætta vináttufærni, sjálfsmynd, leiðtogahæfileika og betri líðan barna og ungmenna.
Námskeiðið er uppbyggilegt og um leið skemmtilegt og eflir börn til að takast á við þær félagslegu aðstæður sem upp koma í lífi þeirra. Til þess að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mjög mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu. Allir geta verið leiðtogar ef þeir einungis fá tækifæri til þess, ásamt þjálfun og reynslu.
Fyrir hverja
Vináttuþjálfun Umhyggju og KVAN er fyrir 7-9 ára (í 2.-4. bekk) systkini langveikra barna. Námskeiðið er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga eða hafa átt í félagslegum vanda, eins og einangrun, vinaleysi, einelti og/eða höfnun.
Við minnum á að ef börn og unglingar notast við stuðningsaðila í skóla þá þurfi einnig að koma með stuðning á öll námskeið okkar fyrir ungt fólk.
Hvað get ég lært
Að loknu námskeiði hafa börnin fengið þjálfun og fræðslu um samskipta-, vináttu-, félags- og leiðtogafærni. Það þýðir til dæmis að þau hafa lært ýmsar aðferðir við að eignast og halda vinum, sem og að takast á við ágreining og neikvæðar athugasemdir. Þau hafa einnig lært um mikilvægi samvinnu og umburðarlyndis, ásamt því að hafa lært hvernig þau geta verið jákvæðir leiðtogar í hópnum sínum, fjölskyldu og eigin lífi. Börn í dag eru að takast á við ýmsar áskoranir í samskiptum, félagsfærni og vináttu og hægt er að undirbúa börn undir þessar og fleiri áskoranir. Þau munu svo sannarlega fá tækifæri til að blómstra og verða besta útgáfan af sjáflum sér á þessu námskeiði.
Skipulag
Námskeiðið er kennt á fimmtudögum frá klukkan 16:30-18:30, í 8 skipti, 2 klst. í senn, einu sinni í viku. Námskeiðið hefst þann 19. ágúst. Námskeiðið fer fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi.
Þar sem Umhyggja niðurgreiðir langstærstan hluta kostnaðar er námskeiðsgjaldið aðeins 7.000 krónur á barn.
Námskeiðið er aðeins ætlað börnum fjölskyldna sem eru í aðildarfélögum Umhyggju. Mikilvægt er að taka fram við skráiningu í hvaða aðildarfélagi viðkomandi er en það er sett í reitinn “upplýsingar” þegar komið er í körfu.