Frábær liðsfélagi

Hvetjandi og hagnýtur fyrirlestur sem byggir m.a. á viðurkenndri hugmyndafræði Patrick Lencioni um The Ideal Team Player. Fyrirlesturinn fjallar um hvað aðgreinir framúrskarandi liðsfélaga frá hinum og hvernig slík hegðun skapar sterk lið, betri samskipti og aukinn árangur.

Þátttakendur kynnast þremur lykileiginleikum frábærs liðsfélaga: auðmýkt, hungur og félagsfærni, og læra hvernig þessir eiginleikar birtast í daglegu starfi og hvaða áhrif þeir hafa á starfsumhverfi.

Fyrirlesturinn blandar saman fræðilegum grunni og reynslu Jóns Halldórssonar, sem hefur í mörg ár unnið að eflingu margra teyma á vinnustöðum og stofnunum. Jón deilir innsýn og aðferðum sem hafa reynst áhrifaríkar við að byggja upp traust, samvinnu og árangur í fjölbreyttum teymum.

Fyrirlesturinn hentar stjórnendum, teymum og skipulagsheildum sem vilja efla samvinnu, ábyrgð og sterka vinnumenningu þar sem allir draga að sameiginlegum markmiðum. Með Frábærum liðsfélaga fá þátttakendur bæði hagnýtar leiðir og innblástur til að verða betri liðsfélagar og styrkja árangur þess teymis sem þau starfa í.

Fyrirlesturinn tekur 60 mínútur og er fyrirlesturinn í höndum Jóns Halldórssonar.

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk