Hamingjan í hversdagsleikanum – jákvæð samskipti á vinnustað
Hamingjan í hversdagsleikanum felst oft í litlu hlutunum – í viðhorfum okkar, samskiptum og þeim áhrifum sem við veljum að hafa á umhverfi okkar. Við getum öll tekið meðvitaða ákvörðun um að áhrif okkar séu jákvæð, bæði fyrir okkur sjálf, fólkið í kringum okkur.
Í fyrirlestrinum er fjallað um hvernig dagleg samskipti, menning innan hópa og vinnustaða mótast af hverjum og einum. Rýnt er í hvernig við getum haft áhrif á andrúmsloftið í kringum okkur, eflt vellíðan og tekist á við áskoranir þegar neikvæð menning eða vanlíðan gerir vart við sig. Lögð er áhersla á ábyrgð einstaklingsins og hvernig lítil skref í daglegu lífi geta haft stór áhrif á heildina.
Húmor er eitt öflugasta verkfærið sem við eigum til að auka lífsgleði, styrkja tengsl og byggja upp traust. Í fyrirlestrinum er rætt um hvernig uppbyggilegur og jákvæður húmor getur aukið hamingju í hversdagsleikanum, bæði í einkalífi og á vinnustað, Enda er hlátur ekki bara skemmtilegur heldur líka bráðhollur.
Fyrirlesturinn hvetur þátttakendur til að mæta deginum með opnum huga, meðvitund og smá húmor í handfarangrinum – því hamingjan byrjar oft nær en við höldum.
Fyrirlesari: Lilja Cederborg
Þáttakandi í Hamingjan í hversdagsleikanum – jákvæð samskipti á vinnustað
Ég var stödd á fyrirlestri hjá Lilju í byrjun síðustu viku á stjórnendadegi hjá Reykjanesbæ. Mig langar til þess að þakka fyrir frábæran, hrífandi, skemmtilegan og áhrifaríkan fyrirlestur. Í gegnum árin hef ég farið á marga fyrirlestra en enginn þeirra hefur verið eins og þinn- Allir sem sátu í kringum mig sögðu það sama. Takk […]
Lesa meira »