Hugrekki í hegðun

Fyrirlesturinn er fræðslu og forvarnarfyrirlestur sem hentar einstaklega vel fyrir framhaldskólanemendur, unglingadeildir og miðstig grunnskóla. Fyrirlesturinn fjallar um ofbeldi, hegðunarvanda og hvað það skiptir miklu máli að hafa hugrekki til þess að bregðast rétt við erfiðum aðstæðum. Fyrirlesturinn er byggður upp á jákvæðan hátt og nemendur hvattir til þess að líta í eigin barm og finna sína styrkleika.

Forvarnir og fræðsla gegn ofbeldi og hegðunarvanda í bland við jákvæða sálfræði. Helstu viðfangsefni fyrirlesturins eru: tilfinningar, tilfinningastjórnun, birtingarmyndir ofbeldis, reglur í samfélaginu, orðspor, fyrirmyndir, samskipti, framtíðarsýn, samkennd, þakklæti og hugrekki.

Fyrirlesturinn tekur 60 mínútur og samanstendur af fyrirlestrinum, umræðum og verkefni unnið.

Fyrirlesari er Soffía Ámundadóttir

Fyrir bókanir er hægt að hafa samband í gegnum netfangið [email protected] eða í gegnum síma 519 3040.

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk