Ásta er með B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands og býr yfir áralangri reynslu sem grunnskólakennari. Á undanförnum árum hefur hún lagt ríka áherslu á að innleiða kennsluefni tengt leiðtogaþjálfun, vaxandi hugafari og hugleiðslu. Hún nýtir þá þekkingu sem þjálfari hjá KVAN, bæði í leik- og grunnskólum. Ásta er einnig með próf í sáttamiðlun, en sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreinings, þar sem tveir eða fleiri aðilar taka sjálfviljugir þátt. Ásta hefur nýtt sáttamiðlun í hinum ýmsum verkefnum hjá KVAN með góðum árangri.

Ásta er afar áhugasöm um jóga og er bæði Jóga Nidra kennari og krakkajógakennari. Hún spilaði og þjálfaði handbolta lengi og hefur starfað mikið innan íþróttahreyfingarinnar og tekið að sér ýmis stjórnunarstörf. Ásta er gift og á tvær dætur.

Ásta hefur mikinn áhuga á yoga og hugleiðslu.

Ásta hefur mikla reynslu af félagsstörfum af ýmsu tagi.

Ásta kann að meta nærandi umhverfi og skemmtilegt fólk.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk