Magnús F. Ólafsson er sálfræðingur og brennur sérstaklega fyrir því að hjálpa börnum og unglingum með hegðunar- og tilfinningavanda ásamt því að veita foreldrum, kennurum og þeim sem starfa með börnum og unglingum ráðgjöf og stuðning. Magnús lauk kandídatsprófi frá Háskóla Íslands árið 2006 og hefur einnig lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð. Hann hefur hlotið sérfræðiviðurkenningu frá Landlæknisembættinu í klínískri barna- og unglingasálfræði.

Magnús hefur víðtæka reynslu af meðferð, greiningu og ráðgjöf, meðal annars í heilsugæslu, MST meðferð á vegum Barna- og fjölskyldustofu og á eigin stofu frá 2017. Magnús gekk til liðs við Sálstofuna árið 2023 og er nú einn eigenda stofunnar. Á námsárunum náði Magnús sér í dýrmæta reynslu með ýmsum störfum í félagsmiðstöðvum ÍTR, stuðningsfulltrúi í grunnskóla og á innlagnardeild BUGL.

Magnús hefur gaman að því að verja tíma sínum úti í náttúrunni, t.d við að renna sér á skíðum og fara í útilegur ásamt því að elda og borða góðan mat og hlæja hátt með góðum vinum.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk