Sjálfstraust og samanburður

Við lifum í samfélagi þar sem samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á okkar daglega líf. Það er nær óhjákvæmilegt að við berum okkar líf saman við líf annara. Hvaða áhrif hefur það? Hvernig mótast okkar sjálfsímynd og sjálfstraust þegar við sjáum afrek annara í glansmynd á hverjum degi? Er raunhæft að maður sé alltaf hamingjusamur og sáttur í eigin skinni?

Þessi fyrirlestur fjallar um sjálfstraust og samanburð. Hvernig við dæmum, dáumst af fólki og miðum okkur við aðra. Farið er yfir hvernig samfélagsmiðlar hafa áhrif á okkar sjálfsálit og hvaða venjur geta haft áhrif á hvernig sjálfsmyndin okkar mótast. Skoðað verður hvers vegna það reynist sumum auðvelt að samgleðjast og setja sína hamingju í fyrsta sæti en öðrum erfitt.

Litið er á fimm leiðir til þess að bæta sjálfstraustið, þar sem lítil skref í „sjálfstali“ eru tekin fyrir.

Fyrirlesari er: Lilja Eivor

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.