Bekkjarstjórnun

Hvernig sköpum við kennslurými þar sem nemendur finna fyrir öryggi, virðingu og hvatningu.

Í fyrirlestrinum er lögð áhersla á leiðir sem hjálpa kennurum að halda vel utan um hópa, efla jákvæð samskipti og stuðla að vellíðan nemenda í leik og starfi.

Fyrirlesari er Ásta Kristjánsdóttir, grunnskólakennari og sáttamiðlari. Ásta er með mikla reynslu sem grunnskólakennari og í fyrirlestrinum deilir hún reynslu sinni, ásamt reynslu af vinnu í Viðbragðsteymi KVAN.

Fyrirlesturinn er 90 mínútur og hentar kennurum, öðru fagfólki í skólum og leikskólum, ásamt starfsfólki frístundaheimila. Hægt er að aðlaga fyrirlesturinn að styttri eða lengri tíma eftir þörfum.

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk