Sáttamiðlun
Kvan býður uppá sáttamiðlun fyrir fyrirtæki, íþróttafélög og stofnanir.
Sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreinings, þar sem tveir eða fleiri aðilar taka sjálfviljugir þátt. Með hjálp óháðs og hlutlauss sáttamiðlara vinna aðilar að því að finna sjálfir lausn á ágreiningi, sem þeir meta viðunandi fyrir alla aðila, í gegnum skipulagt og mótað ferli.
KVAN hefur aðstoðað vinnustaði og íþróttafélög að finna sjálf lausn á ágreiningi í gegnum skipulagt og mótað ferli með árangursríkum hætti.
Ásta Kristjánsdóttir er sáttamiðlari hjá KVAN.
Fyrir nánari upplýsingar og bókanir vinsamlega hafðu þá samband í síma 519 3040 eða í gegnum netfangið [email protected]
