Inngangur og kynning á notkun útikennslu í námi

Dagsetning:

17. ágúst 2023, 09:00 - 17. ágúst 2023, 12:00

Staðsetning

,

Deila:
Bæta við í dagatal

17. ágúst klukkan 9:00-12:00


Inngangur og kynning á notkun útikennslu í námi

Þegar við tökum þátt í athöfnum og leikjum utandyra, getum við þróað og þroskað okkur sjálf og um leið aðra sem við störfum með í hópavinnu. Með útinámi stuðlum við að sambandi okkar við umhverfið, með því að verða meðvitaðri um heiminn og því sem í kringum okkur er og læra að bera kennsl á og nýta okkur það sem er „meira en mannlegt“.

Dr. Mark Leather fer yfir það á vinnustofunni hvernig við getum nýtt okkur útikennslu í því að vinna að samskiptum, samvinnu og trausti, sem og líkamlegum, tilfinningalegum og vitrænum áskorunum. Vinnustofan er hönnuð með það að leiðarljósi að efla samheldni hópa, hópefli og sjálfsþróun. Farið verður yfir hvernig þetta tengist kennslu í skólanámskrá beint.

Vinnustofan er önnur af tveimur vinnustofum sem Mark heldur þann 17. ágúst. Vinnustofurnar eru unnar í samvinnu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands en Dr. Mark Leather er núna gestaprófessor við Menntavísindasvið. Hægt er að skoða hina vinnustofuna hér: https://kvan.is/events/ad-nyta-bla-rymi-natturunnar-i-nami-og-lifi/

Fyrir hverja

Kennara í skólum á öllum skólastigum, starfsmenn í félagsmiðstöðvum, frístundastarfi, þjálfarar, tómstunda- og félagsmálafræðinga, iðjuþjálfa, náms- og starfsráðgjafar og annað fagfólk sem vilja kynnast eða dýpka þekkingu sína á aðferðum útináms.

Kennsla fer fram á ensku en umræður geta farið fram bæði á ensku og íslensku. 

Skipulag

Vinnustofan er kennd í 3 klukkustundir frá kl. 9:00-12:00. Vinnustofan fer fram í sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal, Engjavegi 6.

Verð

19.900 kr. á þátttakanda. 

Þjálfari vinnustofunnar

Þjálfari á vinnustofunni er Dr. Mark Leather.  

Mark er dósent í kennslu við háskólann í St. Mark og St John (Marjon), Plymouth og Devon á Bretlandi. Hann sérhæfir sig í útivistar- og upplifunaraðferðum við nám og kennslu og nýtur góðs alþjóðlegs orðspors fyrir fyrirlestra sína og greinaskrif á því sviði. Hann elskar hversu ríkt útivistarsamhengið er af tækifærum og upplifunum til menntunar – að byggja upp teymi, samskiptahæfni og þróa forvitni.

Mark hefur mikla reynslu af æðri menntun (grunnnámi, framhaldsnámi og rannsóknum), menntaskólakennslu, sem og í óformlegri menntun utandyra. Hann hefur gaman af fólki og stöðum, tengir fólk við sjálft sig, við aðra, við náttúruna og menningu sína. Mark kemur með leikandi nálgun við lærdóm og nám og telur að upplifun sé best þegar hún er skemmtileg, fagurfræðileg og innihaldsrík. Hans sanna ástríða snýst um fólk og ferla frekar en viðfangsefni og þekkingu.

Styrkir

  • Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
  • Vinnumálastofnun veitir atvinnuleitendum styrk fyrir 75% af námskeiðsgjaldinu.
  • Fyrirtæki geta flest sótt styrk frá Starfsmenntunarsjóði fyrir allt að 90% af kostnaði fyrir alla starfsmenn sína. Sá styrkur er óháður inneign starfsmanna sjálfra í sjóðnum. Hægt er að sjá nánar á attin.is

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN  í gegnum netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.