Hvernig finnur þú þína eigin Á-byrgð

Grein eftir Gunnar Þorsteinsson

Mörg ungmenni upplifa í dag lamandi pressu um að gera allt fullkomlega. Hjá KVAN vinnum við með markþjálfun til þess að breyta ábyrgðartilfinningunni úr því að vera íþyngjandi yfir í að vera valdeflandi.

Mikið af þeim ungmennum sem leita til okkar í markþjálfun og einstaklingsþjálfun lýsa svipaðri tilfinningu: Þeim finnst þau aldrei gera hlutina nógu vel og að markmiðum þeirra verði hreinlega aldrei náð. Þessi stöðuga pressa í daglegu lífi veldur því að mörgum finnst lífið vera í óreiðu og hversdagurinn verður þungbær.

Þegar fullkomnunaráráttan tekur völdin
Í markþjálfun ræðum við oft um fullkomnunaráráttu – þessa háværu rödd sem minnir okkur stöðugt á að við þurfum ekki bara að gera okkar besta, heldur meira en það. Mörg festast í þessu hugsanamynstri og þá fer orðið „ábyrgð“ að fá á sig neikvæða merkingu.
Við sjáum það reglulega hjá KVAN að ábyrgð fer að verða íþyngjandi hugtak sem dregur fólk niður í stað þess að hvetja það áfram.

Að búa til sinn eigin ramma
Í markþjálfuninni drögum við athyglina inn á við. Við skoðum hvernig hægt er að beisla ábyrgðartilfinninguna á jákvæðan hátt. Það er valdeflandi að sjá einstaklinga átta sig á því að lífið snýst ekki um að skora 100% í öllum þeim viðmiðum sem samfélagið og samfélagsmiðlar setja okkur.

Í staðinn búum við til okkar eigin ramma. Við spyrjum:
⦁ Hvað er „fullkomnun“ í mínum augum?
⦁ Hvaða markmiðum vil ég raunverulega ná fyrir mig sjálfa/n?

Í stað þess að miða árangur eingöngu við til dæmis einkunnir, skoðanir annarra eða viðbrögð á samfélagsmiðlum, lærum við að miða hann við okkar eigin líðan og þau skref sem við stígum í átt að því sem veitir okkur raunverulega gleði. 

Þegar við hættum að reyna að þóknast öðrum og förum að vinna fyrir okkur sjálf, verður breytingin gríðarleg.

Ábyrgð sem gefur kraft – fyrir öll
Um leið og við tökum orðið ábyrgð og gerum það að einhverju sem við stýrum sjálf, gerist eitthvað töfrandi. Það fer að verða gaman að setja okkur markmið og sjálfstraustið eykst vegna þess að ramminn er núna persónulegur og viðráðanlegur.
Þótt mikið sé rætt um ungmenni, þá á þetta við um okkur öll. 

Hjá KVAN vinnum við jafnt með fullorðnum sem og ungmennum í markþjálfun, í einstaklingsþjálfun og á námskeiðum okkar, enda fylgir fullkomnunaráráttan okkur oft fram á fullorðinsár ef ekki er unnið úr henni.

Vöxtur og vellíðan í fyrirrúmi
Við mætum hverjum og einum á hans forsendum, í öruggu rými þar sem trúnaður og traust eru lykilatriði. Í markþjálfun hjá KVAN stýrir markþeginn alltaf ferðinni – hans líðan og markmið eru leiðarljósið.
Við mætum þér með hlýju og einlægum áhuga á að sjá þig blómstra. Þetta er tækifæri til að vinna markvisst að þínum markmiðum og auka vellíðan í daglegu lífi. Það er dásamleg tilfinning þegar ábyrgðin verður allt í einu uppbyggileg, skemmtileg og raunsæ. Þannig finnum við okkar eigin á-byrgð.

Gunnar Þorsteinsson
Höfundur er þjálfari og markþjálfi hjá KVAN
[email protected]

Viltu bóka tíma hjá okkur?
Hjá KVAN bjóðum við upp á fjölbreytt námskeið, fyrirlestra og sérverkefni fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki, auk einstaklings- og markþjálfunar fyrir ungmenni og fullorðna.

⦁ Netfang: [email protected]
Einstaklingsþjálfun: kvan.is/einstaklingsthjalfun 

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk