Námskeið í kynningartækni

Finndu öryggi í að tala fyrir framan fólk

Dagsetning:

17. apríl 2026, 09:00 - 17. apríl 2026, 16:00

Staðsetning

KVAN, Kópavogur

Deila:
Bæta við í dagatal

Föstudaginn 17. apríl kl. 9:00-16:00

Sérsniðið námskeið í kynningartækni fyrir einstaklinga eða hópa. Námskeiðið nýtist stjórnendum, sölufólki og í raun öllum þeim sem vilja koma fram fyrir hönd síns fyrirtækis á áhrifaríkan og vandaðan hátt. Við leggjum mikla áherslu á að þátttakendur fái sérsniðna þjálfun út frá sínum styrkleikum, að þeir efli kynningartækni sína og geti sett málefni fram á skipulagðan og áhrifaríkan hátt.

Fyrir hverja

Kynningartækni KVAN er fyrir alla þá sem vilja auka hæfni sína og getu við að kynna t.d. verkefni, hugmyndir og stefnu fyrirtækja á áhrifaríkan, skemmtilegan, hvetjandi og faglegan máta. Námskeiðið hentar bæði stjórnendum sem og öðrum starfsmönnum sem þurfa að koma fram fyrir hönd sinna fyrirtækja og stofnana.

Hvað get ég lært

Eftir námskeiðið ættir þú að hafa komið auga á hvar styrkleikar þínir liggja í kynningartækninni og hvernig best er að nýta þér þá. Þú lærir einnig um mismunandi tegundir af áhrifaríkum kynningum, hvernig og hvenær myndefni/powepoint á við í kynningum og hvernig hægt er að nýta það til að auka áhrifamátt kynninga til muna. Þú getur lært aðferðir við að halda streitu í lágmarki, fundið stuðning og hugrekki til að líða vel í því hlutverki að tala fyrir framan annað fólk. Þetta, ásamt svo mörgu öðru getur þú lært á KVAN kynningartækni.

Skipulag

Námskeiðið er kennt heilan dag, frá kl. 9:00 – 16:00. Námskeiðið fer fram í sal okkar að Hábraut 1a, 200 Kópavogi.

Þjálfari á námskeiðinu

Þjálfari á námskeiðinu er Hjördís Ýr Johnson. Hjördís hefur þjálfað kynningartækni í fjölda fyrirtækja og námskeiðum við frábæran árangur.

Verð

69.900 kr.

Styrkir

  • Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
  • Vinnumálastofnun veitir atvinnuleitendum styrk fyrir 75% af námskeiðsgjaldinu.
  • Fyrirtæki geta flest sótt styrk frá Starfsmenntunarsjóði fyrir allt að 90% af kostnaði fyrir alla starfsmenn sína. Sá styrkur er óháður inneign starfsmanna sjálfra í sjóðnum. Hægt er að sjá nánar á attin.is

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið [email protected] til þess að fá nánari uppslýsingar.

 

Skráðu þig núna

Tegund viðburðar: Fjöldi: Einingarverð:
Kynningartækni, 17. apríl
16 Left:
Fjöldi:
Einingarverð: 69.900 kr.

Skilaboð til KVAN

Fjöldi: Samtals:

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk