Sara Gunnlaugsdóttir, þátttakandi á KVAN 16-19 ára

Ég verð að fá að skrifa smá meðmæli um hann Boga besta. Það eina sem að ég get sagt er að Bogi er engin venjulegur maður og enginn venjulegur kennari. Hann er með ofurkrafta. Þegar ég fór á Kvan námskeiðið árið 2019 þá kenndi Bogi okkur ekki, hann gaf okkur vitneskju beint frá hjartanu sínu. Hann er yndislegur í alla staði og það sést langar leiðir hvað honum þykir starf sitt skemmtilegt. Hann er ekki bara þjálfari hann er jafningi og vinur. Takk fyrir samstarfið elsku Bogi og ég vona að fleiri verði svo heppnir eins og ég að fá að kynnast þessum ofurmanni! <3