Taktu af skarið – Treystu á eigin kraft í starfi

Á vinnustöðum liggja styrkleikar starfsfólks oft í dvala vegna samanburðar, neikvæðra hugsana, lítils sjálfstrausts og ótta við álit annarra. Þegar starfsfólki líður vel, þorir að taka af skarið, koma með eigin hugmyndir og fær að njóta sín sem það sjálft, aukast styrkleikar þess og framleiðni til muna.

Í þessum fyrirlestri, sem hentar jafnt fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnana, er farið yfir ýmis hagnýt ráð og viðfangsefni sem auka samskiptahæfni okkar ásamt því hvernig við getum betur sett okkur í spor annarra. Einnig er farið yfir það hvernig okkur getur liðið betur, um kvíða og hvernig hann getur hamlað okkur í að ná árangri í lífi og starfi. Farið er meðal annars yfir leiðtogahæfni, sjálfstraust, hugarfar okkar og viðhorf.

Fyrirlesari er Gunnar Þorsteinsson sem nálgast efnistökin á persónulegum nótum í bland við húmor, þar sem hann segir frá baráttu sína við kvíða og vanlíðan á barna- og unglingsárum sínum.

Lengd fyrirlestrarins: 60-90 mínútur.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk