Kynningartækni
Sérsniðið námskeið í kynningatækni fyrir einstaklinga eða hópa. Námskeiðið nýtist stjórnendum, sölufólki og í raun öllum þeim sem vilja koma fram fyrir hönd síns fyrirtækis á áhrifaríkan og vandaðan hátt. Við leggjum mikla áherslu á að þátttakendur fái sérsniðna þjálfun út frá sínum styrkleikum, að þeir efli kynningartækni sína og geti sett málefni fram á skipulagðan og áhrifaríkan hátt. Við kennum þátttakendum aðferðir sem hjálpa þeim að byggja upp öflugar og skemmtilegar kynningar.
Fyrir hverja
Kynningartækni KVAN er fyrir alla þá sem vilja auka hæfni sína og getu við að kynna t.d. verkefni, hugmyndir og stefnu fyrirtækja á áhrifaríkan, skemmtilegan, hvetjandi og faglegan máta. Námskeiðið hentar bæði stjórnendum sem og öðrum starfsmönnum sem þurfa að koma fram fyrir hönd sinna fyrirtækja og stofnana.
Hvað get ég lært
Eftir námskeiðið hafa þátttakendur komið auga á hvar styrkleikar sínir liggja í kynningartækninni og hvernig best er að nýta sér þá. Þeir læra um mismunandi tegundir af kynningum ásamt því að læra aðferðir/aðferðafræði sem hjálpa þeim að byggja upp áhrifaríkar og skemmtilegar kynningar. Þátttakendur læra aðferðir við að halda streitu í lágmarki og fá stuðning til að líða vel í því hlutverki að tala fyrir framan annað fólk.
Skipulag
Námskeiðið er kennt heilan dag, frá kl. 09:00 – 16:00.
Þjálfarar námskeiðsins:
Þjálfarar á KVAN kynningartækni eru þau Anna Guðrún Steinsen, Hjördís Ýr Johnson og Jón Halldórsson. Öll hafa þau yfirgripsmikla þekkingu og mjög mikla reynslu í þjálfun á kynningartækni og hafa þjálfað hundruði stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis.
Verð
69.900 kr.
Styrkir
- Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
- Vinnumálastofnun veitir atvinnuleitendum styrk fyrir 75% af námskeiðsgjaldinu.
- Fyrirtæki geta flest sótt styrk frá Starfsmenntunarsjóði fyrir allt að 90% af kostnaði fyrir alla starfsmenn sína. Sá styrkur er óháður inneign starfsmanna sjálfra í sjóðnum. Hægt er að sjá nánar á attin.is
Við bjóðum fyrirtækjum og stofnunum að halda sér námskeið fyrir hvern og einn vinnustað þar sem efnistök eru sniðin utan um áskoranir þess hóps sem sækir námskeiðið.
Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.
Viltu vita meira um námskeiðið ?
Magnús Þór Helgason, þátttakandi á kynningartækni KVAN
Flutningur kynninga er hluti af starfi okkar sem tæknilegir vörustjórar á upplýsingatæknisviði hjá Arion banka. Það eru alltaf tækifæri til að læra meira og betrumbæta og okkur datt því í hug að skella okkur á þetta námskeið hjá KVAN. Við höfðum öll hrikalega gaman að námskeiðinu...
Lesa meira »Bryndís Einarsdóttir sálfræðingur, þátttakandi á kynningartækni KVAN
Ég tók þátt í námskeiði hjá Kvan ásamt samstarfsfólki mínu hjá Líf og sál. Við erum öll vön því að koma fram og halda fyrirlestra og námskeið en ákváðum að það sé alltaf hægt að betrumbæta...
Lesa meira »