Fyrirlestur/fræðsla fyrir foreldra og forráðafólk barna í 1. bekk

Fyrirlestur/fræðsla fyrir foreldra og forráðafólk barna í 1. bekk

Að hefja skólagöngu er stórt skref í lífi barns og fjölskyldu þess. Í þessu erindi verður farið yfir atriði sem gott er að hafa í huga þegar barn byrjar í 1. bekk, með áherslu á hvernig foreldrar og forráðafólk geta haft jákvæð áhrif á líðan og námsárangur barna sinna.

Við fjöllum um hlutverk foreldra og forráðafólks, hvað best er að gera komi upp árekstrar í samskiptum og gefum foreldrum og forráðafólki hagnýt verkfæri. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi jákvæðra og uppbyggilegra samskipta foreldra og forráðafólks við kennara og starfsfólk skóla, sem og aðra foreldra.

Öll erum við með sama markmið; að skólaganga barnanna okkar sé farsæl og að börnunum líði sem best í leik og starfi. Til þess að ná því markmiði þurfum við öll að ganga í takt og mynda eina liðsheild. Þessi fyrirlestur hefur verið haldinn árlega í mörgum skólum og getur einnig hentað fyrir aðra árganga.

Fyrirlesturinn tekur um 60-80 mínútur en hægt er að aðlaga hann að öðrum tíma.

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið [email protected] til þess að fá nánari upplýsingar.

Lukkuhjól Kvan

  • Snúðu hjólinu og sjáðu hvort heppni sé ekki með þér í dag.
  • 1 snúningur á hvert netfang - Gildir ekki í ferðir.
Snúðu hjólinu!
Never
Minnið mig á þetta síðar
Nei takk