Áskoranir í skólastarfi – Hegðun og ofbeldi nemenda

Vinnustofan um áskoranir í skólastarfi – hegðun og ofbeldi nemend á erindi inn í alla skóla landsins. Vinnustofan hefur verið gríðarlega vinsæl þar sem starfsfólk hefur fengið verkfæri og bjargráð sem gerir þau að færari starfsmönnum með bættri líðan í starfi.

Ofbeldishegðun og hegðunarvandi er vaxandi innan skólakerfisins. Rannsóknir sýna að nemendur beita ofbeldi vegna vanlíðanar, geðrænna erfiðleika, skorts á viðeigandi bjargráðum, samskiptahæfni og fleiri þátta. Ábyrgð starfsfólk skóla er mikil og mikilvægt að koma til móts við þarfi nemenda og hjálpa þeim að þroskast við öruggar aðstæður. Starfsumhverfi skólans er að ýmsu leyti ófullnægjandi, umræðan á samfélagsmiðlum óvægin og flókið ferli að vinna úr grófum ofbeldismálum.

Markmið vinnustofunnar er að þátttakendur öðlist færni og innsæi á bæði ofbeldishegðun nemenda og hegðunarvanda. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að fara til að hjálpa nemendum. Fjallað verður um rannsóknir á viðfangsefninu, algengi, ástæður, viðbrögð, úrræði og verkfæri sem hægt er að styðjast við til að leysa þessi viðkvæmu mál.

Á þessari vinnustofa verður farið yfir stöðuna og fá þátttakendur bjargráð og verkfæri til að takast á við þær krefjandi aðstæður sem starfsfólk skólakerfisins stendur fyrir í dag. Þetta er allt í bland, fyrirlestur, umræður og vinnustofa.

Skipulag
Þetta er tveggja klukkustunda vinnustofa þann 1. október frá kl. 15:00-17:00. Kennt verður í sal okkar að Hábraut 1a í Kópavogi.

Verð
Verð fer eftir stærð hópa. Við bjóðum skólum og stofnunum að halda sér námskeið fyrir hvern og einn vinnustað þar sem efnistök eru sniðin utan um áskoranir þess hóps sem sækir námskeiðið.

Þjálfari vinnustofunnar
Þjálfari vinnustofunnar er Soffía Ámundadóttir. Soffía er með B.Ed próf frá Kennaraháskóla Íslands. Ásamt því að vera grunnskólakennari er Soffía leikskólakennari, með BA gráðu í táknmálsfræðum og táknmálstúlkun. Hún er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun menntastofnana og diplómu í Jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Soffía hefur starfað síðustu 30 ár bæði í leik- og grunnskóla, síðast í Brúarskóla sem er skóli fyrir börn með tilfinninga- og hegðunarvanda. Soffía starfar einnig á neyðarvistun Stuðla og hefur kennt námskeið um ofbeldi og hegðunarvanda nemenda víða um land. Síðasta skólaár hitti Soffía um 3000 starfsmenn allra skólastiga og frístundar. Einnig hefur hún verið að hitta nemendur í unglingadeildum, foreldrafélög og þjálfara í íþróttafélögum. Soffía starfar á menntavísindsviði Háskóla Íslands og er verkefnastjóri Menntafléttunnar inn á NýMennt.

Styrkir

  • Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.