Verkfærakista fyrir leikskólakennara

Leikskólakistan
Veitir leikskólakennurum og öðru fagfólki sem starfar í leikskólum hagnýt verkfæri til að vinna annars vegar með einstaklinga og hins vegar með hópinn. Fjallað er um félagsfærni, vináttufærni, jákvæða og neikvæða leiðtoga og börn sem eiga í félagslegum vanda. Einnig um aðferðir til að vinna gegn samskiptavanda og einelti, sem og jákvæðan aga. Þá er lögð áhersla á aðferðir sem hafa þann tilgang að styrkja hópinn, eins og hægt er miðað við aldur. 

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir starfandi leikskólakennara og annað fagfólk sem starfar á leikskólum. 

Skipulag
6 skipti, 2,5 klst. í senn. Á milli tíma fá þátttakendur tækifæri til að prófa aðferðirnar í sínum hópi og fá stuðning og handleiðslu í næsta tíma á eftir. 

Hvað get ég lært? 

  • Að styrkja jákvæðan anda í hópnum og efla þannig forvarnir gegn einelti, samskiptavanda og öðrum neikvæðum og meiðandi samskiptum.  
  • Að bera kennsl á og aðstoða börn sem eiga í félagslegum vanda. 
  • Að þekkja leiðir til að þjálfa félags- og vináttufærni, sjálfstjórn og jákvæða hegðun. 
  • Að meta eigin samskipti og leiðir til að vinna með þau. 

Dæmi um aðferðir og verkfæri: 

  • Vináttuþjálfun 
  • Jákvæð leiðtogaþjálfun 
  • Samvinnuleikir og samvinnuverkefni 
  • Félagsfærniþjálfun 
  • Hópefli 

Verð
99.900 kr.

Styrkir
Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.

Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.

Næstu námskeið:

Engin væntanleg námskeið eins og þetta. Hafðu endilega samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.

Viltu vita meira um námskeiðið ?