Verkfærakistan
Verkfærakistan er hagnýtt námskeið fyrir kennara og annað fagfólk til að vinna með hópa og einstaklinga í samskipta- og félagslegum vanda. Rannsóknir sýna að félagslegum vanda fylgja alvarlegar og jafnvel langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir börn á öllum aldri. Því er mikilvægt að skima fyrir félagslegum erfiðleikum og grípa inn í eins fljótt og auðið er. Til að svo megi verða þurfa kennarar og allir þeir sem vinna með börnum að hafa þekkingu og færni til að koma auga á börn í félagslegum vanda ásamt því að kunna árangursríkar aðferðir til að hjálpa þeim. Oft er þó ekki nóg að vinna eingöngu með einstaklinga heldur þarf að vinna með allan hópinn. Er það til að mynda nauðsynlegt í eineltismálum og ýmsum samskiptavandamálum. Þá er vandinn í mörgum tilfellum tengdur hópnum í heild en ekki einstaka börnum. Bestur árangur næst með markvissum langvarandi aðgerðum sem beinast annars vegar að einstaklingum og hins vegar að hópnum.
Fyrir hverja
Verkfærakistan er fyrir starfandi kennara og annað fagfólk eins og starfsfólk frístundaheimila, félagsmiðstöðva, íþróttaþjálfara og aðra sem eru að vinna með börn, unglinga og ungt fólk.
Hvað get ég lært
Að loknu námskeiði ætti fagfólk að hafa öðlast verkfæri til að bera kennsl á og vinna með einstaklinga sem eiga í félagslegum vanda annars vegar og hópa sem glíma við samskiptavanda hins vegar. Einnig færðu tækifæri til að greina hvar vandinn liggur en hann getur verið fólginn í samskiptaerfiðleikum, ljótu orðfari, lélegum bekkjaranda, einelti, ágreiningi innan hópsins, lélegum vinnufrið og svo mætti áfram telja. Vandi einstaklinga getur verið vinaleysi, klaufagangur í samskiptum, höfnun, einelti, hegðunarvandi og önnur félagsleg vandamál. Dæmi um aðferðir og verkfæri sem þú færð á námskeiði Verkfærakistunnar eru vináttuþjálfun, notkun innri hvata, jákvæð leiðtogaþjálfun, afleiðingaaðferðin, vinna með gerendur, samvinnuleikir og samvinnuverkefni, reiðistjórnun, félagsfærniþjálfun og hópefli.
Skipulag
Námskeiðið samanstendur af 6 skiptum, tvær og hálfa klukkustund í senn. Inn á milli tímanna prófa þátttakendur aðferðirnar í sínum hópi og fá stuðning og handleiðslu í næsta tíma á eftir. Þátttakendur fá handbókina Verkfærakistan og fleiri verkfæri til að nota á námskeiðinu sem og við áframhaldandi vinnu.
Verð
99.900 kr.
Styrkir
Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.

Viltu vita meira um námskeiðið ?

Fríða Stefánsdóttir, deildarstjóri Sandgerðisskóla
Við byrjuðum á því að fara í námsferð til Edinborgar haustið 2019, en KVAN sá um allan undirbúning og skipulag. Þar byrjaði vegferð okkar í Verkfærakistunni undir leiðsögn Vöndu Sig. Námskeiðið var þannig uppbyggt að...
Lesa meira »
Sesselja Þóra Gunnarsdóttir, skólastjóri Sjálandsskóla
Í Sjálandsskóla höfum við fengið Vöndu í samstarf vegna neikvæðra samskipta í nemendahópum og eineltishegðunar. Hún hefur líka haldið frábær námskeið fyrir kennara skólans sem ég tel að allt starfsfólk skóla ætti að fara á.
Lesa meira »
Íris Björk Eysteinsdóttir, kennsluráðgjafi og verkefnastjóri
Vanda Sigurgeirsdóttir og KVAN breyttu öllu fyrir okkur í vetur. Þau hjálpuðu okkur að vinna gegn eineltishegðun og bæta samskipti til muna hjá nemendum í 7. bekk. Nálgunin hjá þeim var...
Lesa meira »
Sigríður Arndís Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða
Vanda er fullkomin í þessum fræðum. Fagmennska, atorka, vilji og metnaður einkennir þessa flottukonu. Fagna því að hún sé á fleygi ferð að sinna málefnum sem mikil þörf er að taka á í samfélaginu...
Lesa meira »
Sigurbjörg Kristjánsdóttir, deildarstjóri unglingastarfs hjá Reykjavíkurborg
Við hjá félagsmiðstöðvum Ársels höfum fengið að njóta þekkingar og reynslu Önnu Steinsen í nokkur ár. Allir starfsmenn stöðvanna hafa sótt fyrirlestra og námskeiða, þar sem Anna hefur miðlað og leiðbeint starfsfólki í vinnu með börnum og unglingum með góðum árangri...
Lesa meira »
Ásgerður Guðnadóttir, leikskólastjóri Leikskólinn Hálsaskógur
Jakob er búinn að koma tvisvar sinnum til okkar á starfsdegi með fræðslu um útinám og félagsfærni. Þessi fræðsla hefur nýst starfsmannahópnum mjög vel og hefur verið hvatning...
Lesa meira »
Arnar, KSÍ
Anna Lilja hefur haldið fyrirlestur um eineltismál á þjálfaranámskeiðum KSÍ. Það sem okkur fannst vel gert var að Anna Lilja náði vel til þátttakenda, var lífleg og dugleg að brjóta kennsluna upp með skemmtilegum uppákomum og umræðum.
Lesa meira »
Soffía Ámundadóttir, umsjónakennari unglingadeild Brúarskóla
Anna Lilja var með námskeið fyrir okkur hjá Brúarskóla. Anna náði vel til nemenda og að virkja alla sem voru á námskeiðinu. Það sem eftir sat hjá nemendum var skemmtileg upplifun...
Lesa meira »
Kolbrún, sölustjóri Frjálsrar Fjölmiðlunar
Við fengum Önnu Steinsen hjá KVAN til að koma til okkar og vera með vinnustofu fyrir söludeildina. Anna kom inn með nálgun sem fékk hópinn til að opna sig, sjá skýrar hvert hópurinn vildi stefna saman og finna drifkraftinn sem þurfti til þess. Þessu náði hún fram á mjög jákvæðan
Lesa meira »
Starfsmenn leikskóla á Hornafirði
-Frábær dagur. Það sem við höfðum gott af því að horfa inná við og finna styrkleika okkar og styrkleika fólksins í kringum okkur. Sjá það jákvæða. -Mjög skemmtilegt, gott að fara í sjálfskoðun, finna sínar veiku og sterku hliðar. -Sjálfsstyrking, markmiðasetning, sjálfskoðun, jákvæðni.
Lesa meira »
Sigríður Arndís Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða
Hér eru frábærir fagmenn á ferð. Vanda og Anna eru fullkomið par í þessum fræðum. Fagmennska, atorka, vilji og metnaður einkennir þetta flotta par. Fagna því að þær séu farnar af stað saman og sinna málefnum sem mikil þörf er að taka á í samfélaginu okkar.
Lesa meira »
Hólmfríður Sigmarsdóttir, leikskólastjóri Marbakka
Í nóvember sl. áttum við starfsmannahópurinn í leikskólanum Marbakka stórbrotinn dag með Önnu Steinsen. Anna er frábær fagmaður sem byrjaði á því að greina stöðuna með okkur, stjórnendum skólans. Í sameiningu fórum við yfir hvað við vildum fá út úr þessum degi.
Lesa meira »