KVAN fyrir fullorðna
Vilt þú finna kraftinn til þess að taka næsta skref? Vilt þú fá aukið sjálfstraust til þess að hámarka árangur þinn í starfi og einkalífi? Vilt þú verða markmiðadrifin(n) og ná aukinni einbeitingu í þínum verkefnum en á sama tíma ná að njóta augnabliksins. Viltu fá aðhald við að ná markmiðum þínum?
Fyrir hverja?
KVAN fyrir fullorðna er fyrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri og vilja efla hæfni og styrkleika sína til að takast á við verkefni á vinnumarkaði eða í einkalífi.
Hvað get ég lært?
Hér gefur að líta nokkra þeirra efnisþátta sem farið er í á námskeiðinu KVAN fyrir fullorðna.
Markmiðasetning og framtíðarsýn
Við kennum þér að setja þér skýra framtíðarsýn og markmið bæði fyrir sjálfa/n þig eða þitt vinnustaðateymi. Aðferðafræðin sem við kennum eykur líkur á því að þín markmið náist og framtíðarýn þín verði að veruleika.
Styrkleikamiðuð nálgun
Á námskeiðinu tekur þú viðurkennt styrkleikapróf og við kennum þér að vinna út frá þínum styrkleikum bæði í starfi og einkalífi. Rannsóknir sýna að með því að veita styrkleikum þínum og starfsmanna þinna athygli, þá sexfaldast líkurnar á því að starfsmenn verði virkari í starfi. Þú tekur styrkleikapróf og við kennum þér að lesa út úr því og yfirfæra á starf þitt.
Samskipti
Við kennum þér að teikna upp samskiptakort, kortleggja þín samskipti í starfi og einkalífi.
Við kennum þér aðferðafræði sem að hjálpar þér að þróa með þér enn betri samskiptafærni með áherslu á jákvæð samskipti.
Leiðtogahæfni
Við kennum þér aðferðafræði jákvæðra leiðtoga og listina við að hafa áhrif á hóp fólks til þess að hjálpa þeim að ná settum markmiðum. Þetta getur til að mynda snúið að því að fá samstarfsfólk í að stefna að settu marki. Ekki síður snýr þetta að því að vera leiðtogi í eigin lífi og ná settum markmiðum þar.
Aðferðafræði markþjálfunar
Með markþjálfun hefur verið sýnt fram á hvernig hægt er að sækja þekkingu, viðhorf og eldmóð starfsmanna og nýta til góðra verka. Við kennum þér aðferðafræði markþjálfunar og sýnum þér hvernig þú getur nýtt þér hana í þínu starfi og einkalífi.
Hvatnig og hrós
Við kennum þér aðferðafræði sem þú getur nýtt þér til að efla hæfileika þína í hvatningu og hrósi dags daglega.
Eftir námskeið hjá KVAN ættir þú að geta fundið aukinn kraft, meira jafnvægi og aukið sjálfstraust. Við þjálfum þig í að tala fyrir framan hóp af fólki og kennum þér einfaldar og áhrifaríkar reglur í tjáningu. Við styrkjum sjálfstraustið og trú á eigin getu ásamt því að finna leiðir til að vera í meira jafnvægi sem nýtist okkur vel þegar takast þarf á við breytingar hvort sem það er á starfsvettvangi eða lífinu sjálfu. Þú getur lært að finna leið til að vera besta mögulega útgáfan af þér sjálfri/sjálfum sem nýtist þér bæði í leik og starfi.
Skipulag
Námskeiðið er kennt í 6 skipti, 3 klukkustundir í senn. Við bjóðum upp á kvöld- og morgunnámskeið sem kennd eru einu sinni í viku í sex vikur. Einnig bjóðum við upp á helgarnámskeið.
Þjálfarar
Þjálfarar á KVAN fyrir fullorðna eru þau Anna Guðrún Steinsen, Jón Halldórsson og Hrafnhildur Jóhannesdóttir.
Verð
109.900 kr.
Styrkir
- Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá stéttarfélögum. Kannaðu þinn rétt innan þíns stéttarfélags.
- Vinnumálastofnun veitir atvinnuleitendum styrk fyrir 75% af námskeiðsgjaldinu.
- Við bjóðum fyrirtækjum og stofnunum að halda sér námskeið fyrir hvern og einn vinnustað þar sem efnistök eru sniðin utan um áskoranir þess hóps sem sækir námskeiðið.
Vinsamlegast hafið samband við okkur hjá KVAN í síma 519 3040 eða á netfangið kvan@kvan.is til þess að fá nánari upplýsingar.
Viltu vita meira um námskeiðið ?
Lúðvík Gröndal, þátttakandi á Online KVAN fyrir fullorðna
Þetta námskeið var mjög innihaldsríkt og gefandi, opnaði augu mín fyrir veikleikum og styrkleikum og ýtti mér talsvert langt út fyrir þægindarammann. Ég mæli 100% með þessu og ekki síst fyrir fólk á tímamótum í lífinu eins og ég nýorðinn 67 ára á leiðinni á eftirlaunaaldurinn!!!
Lesa meira »Gyða Rán Árnadóttir, þátttakandi á Online KVAN fyrir fullorðna
Það kom á óvart hvað það náðist mikil nánd milli þáttakenda þar sem þetta fór allt fram í gegnum tölvuna. Námskeiðið sjálft var virkilega innihaldsríkt og gaf manni feykimörg verkfæri í töskuna til að nýta í gegnum lífið...
Lesa meira »Emma Sif Björnsdóttir, þátttakandi á Online KVAN fyrir fullorðna
Ég mæli 100 % með námskeiði hjá Kvan, þar vinnur frábært fagfólk og í mínu tilfelli var námskeiðið haldið á zoom sem virkaði líka mjög vel, mjög góð tenging milli okkar sem vorum á námskeiðinu, alltaf mikil gleði og virkilega gaman...
Lesa meira »Fanný Heimisdóttir, þátttakandi á Online KVAN fyrir fullorðna
Það er svo gott að hlægja með góðu fólki og hugsa um leið um hvað mætti betur fara hjá manni, nota húmor til að nálgast veikleika og fá speglun í öðrum bæði um styrkleikana og veikleikana...
Lesa meira »Lára Gunndís Magnúsdóttir, þátttakandi á Online KVAN fyrir fullorðna
Ég get svo sannarlega mælt með námskeiðinu KVAN Oneline - fyrir fullorðna. Anna Steinsen er afbragðs þjálfari sem hvetur áfram af hlýju. Frábært að læra að setja sér markmið og þekkja styrkleika sína. Þannig eykst kjarkur og þor.
Lesa meira »Fanney Magnúsdóttir, þátttakandi á Online KVAN fyrir fullorðna
Ég var búin að heyra góða hluti af KVAN en námskeiðið fór langt fram úr mínum væntingum. Námskeiðið fór fram á ZOOM en upplifunin alls ekki síðri. Anna Steinsen er frábær leiðbeinandi og hefur ótrúlega gott lag á að ná fram virkri þátttöku okkar sem sóttu námskeiðið...
Lesa meira »Brynja Andreassen, þátttakandi á KVAN fyrir fullorðna
Ég held að ég geti sagt að ég sé dugleg að ögra sjálfri mér og fara út fyrir þægindarammann. Það þarf hins vegar að halda slíku við annars rennur það út í sandinn. Það var þess vegna sem ég skráði mig á námskeið hjá KVAN. Að láta ýta við sér...
Lesa meira »Vala Sigurðardóttir, þátttakandi á KVAN fyrir fullorðna
Ég myndi persónulega vilja að þetta væri skyldu námskeið fyrir alla á uppvaxtarárum því ég hefði svo sannarlega verið til í að taka þetta námskeið þegar að ég var yngri og svo á c.a 10 ár fresti eftir það til að rifja upp og bæta í þekkinguna...
Lesa meira »Ingibjörg Sigurrós Gunnarsdóttir, þátttakandi á KVAN fyrir fullorðna
Ég var svo lánsöm að taka þá ákvörðun að sækja námskeið hjá Kvan undir handleiðslu Hrafnhildar. Námskeiðssókn mín var liður í þeirri viðleitni minni að kíkja út fyrir þægindarammann, staldra við og horfa inná við. Skemmst er frá því að segja að námskeiðið mætti öllum mínum væntingum og gott betur...
Lesa meira »Ómar Smári Jónsson, þátttakandi á KVAN fyrir fullorðna
Það sem KVAN gaf mér var drifkraftur. Það varð allt í einu skemmtilegt að setja sér markmið í hverri viku og negla þau. Þau skref sem voru mér svo þung, urðu allt í einu...
Lesa meira »Tinna Brá Sigurðardóttir, þátttakandi á KVAN fyrir fullorðna
Eftir að hafa verið í fæðingarorlofi í 14 mánuði og misst vinnuna vegna Covid fann ég að ég þurfti svolítið að staldra við og hugsa út í hvað ég vil gera næst. Þess vegna ákvað ég að skrá mig á Kvan námskeið...
Lesa meira »